Engin inn nema á háhæluðum skóm

Háhælaðir skór hafa verið helsta umræðu­efni kvikmynda­hátíðarinnar í Cannes í ár, eftir að konu á flatbotna skóm var meinaður aðgangur á frum­sýningu. Tísku­sérfræðingar, feminístar og félags­fræðingar hafa tjáð sig um málið um allan heim. Háhælaðir skór eru greini­lega umdeilt fyrirbæri – þeir hafa djúpa, flókna og menningar­fræðilega merkingu sem vert er að gefa gaum.

Engar „selfies“


Thierry Fremaux, fram­kvæmd­ar­stjóri hátíð­ar­innar í Cannes hefur heldur betur verið á milli tann­anna á fólki þessa vik­una. Það má jafn­vel segja að hann sé eins­konar „stjarna“ hátíð­ar­innar í ár. Hann hefur dregið til sín kast­ljósið fyrir furðu­legar upp­á­komur og skoð­anir sem þykja í meira lagi bæði úreltar og snobb­aðar.

Fyrst voru það sjálfs­myndir á rauða dreglinum. Fremaux beindi þeim tilmælum til leikara fyrir hátíðina að „selfie-mynda­tökur“ væru bannaðar vegna þess að þær drægu niður virðingu hátíðarinnar. Auk þess væru þær, eins hann orðaði sjálfur: „Smekk­lausar, hallærislegar og viðurstyggilegar ljós­myndir.“

Mörgum fannst þetta furðulegt útspil og tjáðu sig um það og tístuðu á Twitter og öðrum samfélags­miðlum. Fáir hafa svo í raun virt þessa reglu framkvæmdar­stjórans en þetta var þó aðeins byrjunin á umdeildri reglugerðar­smíði hans - hvað varðar rauða dregilinn.

Thierry Fremaux, hinn umdeildi framkvæmda­stjóri kvikmynda­hátíðarinnar í Cannes. Mynd: EPA

Skóhneysklið í Cannes


Næst voru það flat­botna skór. Síðustu helgi var danski kvik­mynda­fram­leið­and­inn, Valeria Richter, á leið á frum­sýn­ingu kvik­mynd­ar­innar Carol, en var mein­aður aðgangur á þeim for­sendum að hún væri á flat­botna skóm sem þætti alls ekki við­eig­andi. Ekki aðeins einu sinni var hún rekin burt – heldur alls fjórum sinnum! Hún gaf þær skýr­ingar að hún gæti ein­fald­lega ekki gengið í háhæl­uðum skóm vegna þess að hún hefði misst hluta af öðrum fæti sínum. Örygg­is­verðir gáfu þó lítið fyrir það – hér gengi engin kona inn á rauða dreg­il­inn - nema þá á háhæl­uðum skóm.

Thierry Fremaux, hinn umdeildi framkvæmdastjóri kvikmyndahátíðarinnar í Canne. Mynd: EPA
Thierry Fremaux, hinn umdeildi fram­kvæmda­stjóri kvik­mynda­há­tíð­ar­innar í Canne. Mynd: EPA

Allt varð bókstaf­lega vitlaust út af þessu atviki. Margir tjáðu sig um málið og tóku upp skóinn fyrir þessa ólánsömu konu, meðal annars breska leikkonan Emily Blunt, sem sagði að þetta væri dæmigert mál fyrir misréttindi gagnvart konum. Hún hvatti í kjölfarið allar kynsystur sínar til þess að henda háhæluðu skónum sínum og mæta hér eftir á striga­skóm á frum­sýningar í Cannes.

Breska leikkonan Emily Blunt á blaðamanna­fundi á Cannes. Mynd: EPA

Breska leikkonan Emily Blunt á blaðamannafundi á Cannes. Mynd: EPA
Breska leik­konan Emily Blunt á blaða­manna­fundi á Cannes. Mynd: EPA

Framkvæmdar­stjórinn brást við þessu öllu saman, baðst afsökunar og sagði að þetta væri nú allt saman einn misskilningur: „Jú, öryggis­verðirnir gengu nú kannski full langt – en auðvitað mega allir vera í þeim skóm sem þeir vilja.“

En eftir höfðinu dansa limirnir og rannsókn málsins hefur leitt í ljós að þessar tilskipanir komu auðvitað beint frá framkvæmdar­stjóranum sjálfum. Fleiri konum hefur sömuleiðis verið vísað frá fyrir að vera í flatbotna skóm og þeim tjáð að þetta sé virt kvikmynda­hátíð, en ekki eitthvað lélegt strandarpartý.

Háhælaðir skór; Lyfta þeir konum upp eða draga þær niður?


Háhæl­aðir skór eru merki­legt fyr­ir­bæri. Frábær hönnun sem er hlaðin þver­sagna­kenndri og marg­slung­inni merk­ingu. Það er fátt sem þykir kven­legra en einmitt háhæl­aðir skór; formið og útlitið þykir kyn­ferð­is­legt og sterkt. Þeir þykja stækka konur, gera þær valds­mann­legri og meiri. Á sama tíma þykja pinna­skórnir binda þær í báða skó niður og hefta. Þeir þykja gjarnan óþægi­legir og draga konur í þján­ing­ar­fulla þraut­ar­göngu. Tákn um kúgun og und­ir­gefni. Enda voru háhæl­aðir skór eitur í beinum fem­inista á sjötta og sjö­unda ára­tugnum. Konur þyrftu að pína sig í þessa óþægi­legu skó til þess að standa jafn­fætis köllum.

Í kjölfar umræðunnar í sambandi við „skóhneysklið“ í Cannes, hafa margar konur tjáð sig um háhælaða skó. Margar konur hafa komið þeim til varnar og talað um tign og glæsi­leika þeirra og að þær séu síst af öllu neyddar til þess að klæðast þeim. Á meðan aðrar konur segja skóna vera skýra og óréttláta samfélags­lega kröfu um kvenlegt útlit; það sé ekki hægt að fara í atvinnu­viðtal eða á opinbera viðburði án þess að klæðast háhæluðum skóm.

„Ég eyðilagði fætunar á mér út af háhæluðum skóm,“ segir leikkonan Sarah Jessica Parker sem þurfti að ganga í þeim 18 tíma á dag í nokkur ár þegar upptökur á Sex and the City sjónvarps­þáttunum stóðu yfir. Hún ásamt stöllum sínum í þáttunum segjast sjá eftir því að hafa stöðugt verið að dásama þessa djöfulsins skó.

Leikkonan Sarah Jessica Parker ber háhæluðum skóm ekki fagra söguna. Mynd: EPA

Leikkonan Sarah Jessica Parker ber háhæluðum skóm ekki fagra söguna. Mynd: EPA
Leik­konan Sarah Jessica Parker ber háhæl­uðum skóm ekki fagra sög­una. Mynd: EPA

Í glamúr­heimi kvikmyndann er enn verið að tala um það þegar leikkonan Emma Thomson kom stormandi inn á síðustu Golden Globe hátíð, berfætt og sötrandi á Martini-kokteil. Má svona? – spurði fólk. Þetta þótti byltingar­kennt athæfi sem vakti marga til umhugsunar um skófatnað kvenna. Uppákoman í Cannes hefur leitt til þess að margar konur hafa nú hvatt frægar leikkonur, eins og Cate Blanchett og Julian Moore, til þess að sniðganga nú háhælaða skó.

Byltingin sé hafin!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár