Yfirmaður herráðs: Engar breytingar á stefnu gagnvart transfólki

Joe Dunford, yfir­maður banda­ríska her­ráðs­ins, segir engar breyt­ingar verða gerðar strax á stefnu Banda­ríkja­hers gagn­vart trans­fólki.

Joe Dunford, yfirmaður bandaríksa herráðsins.
Joe Dunford, yfir­maður banda­ríksa her­ráðs­ins. Mynd: EPA

Það verða engar breyt­ingar gerðar á stefnu Banda­ríkja­hers gagn­vart trans­fólki, þrátt fyrir yfir­lýs­ingar Donald Trump á Twitter í gær, segir Joe Dunford, yfir­maður banda­ríska her­ráðs­ins. Þetta kemur fram á vef Politico í dag.

Kjarninn fjall­aði um Twitter-færslu Donald Trump, banda­ríkja­for­seta í gær, en þar sagði hann að trans­fólk ætti ekki að gegna her­þjón­ustu í Banda­ríkj­unum vegna „stór­kost­legs lækna­kostn­aðar.“

Í kjöl­far Twitter-færsl­unnar sendi Joe Dunford skila­boð til allra yfir­manna banda­ríska varn­ar­mála að Banda­ríkja­her muni halda áfram að „koma fram við alla starfs­menn okkar af virð­ingu.“

„Ég veit að til­kynn­ingin í gær um stefnu trans­fólks í banda­ríkja­her hefur vakið margar spurn­ingar,“ segir Dunford í skila­boð­unum. „Það verða ekki gerðar neinar breyt­ingar á núver­andi stefnu þangað til form­leg stefna for­set­ans verði mót­tekin í varn­ar­mála­ráðu­neyt­inu og ráð­herr­ann gefi út við­mið­un­ar­reglur.“

„Þangað til munum við halda áfram að koma fram við alla starfs­menn okkar af virð­ingu. Eins er mik­il­vægt, vegna núver­andi bar­áttu og áskor­anir sem við stöndum frammi fyrir, að við höldum áfram að ein­beita okkur að ná okkar settum verk­efnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár