Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum

Business Insider tekur reglulega saman lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag, að þeirra mati. Stöðugleika­skattur, íslenskar pólitískar þrumur, viðbyggingar við Alþingishús eða fertugsafmælis­veisla íslenska forsætis­ráðherrans komast ekki á listann í dag. Þessir atburðir gerðu það hins vegar:


  1. Hillary Clinton, fyrrum forsetafrú og utan­ríkis­ráðherra Banda­ríkjanna, hefur tilkynnt að hún ætli að bjóða sig fram til forseta Banda­ríkjanna árið 2016.

  2. Nýtt myndband sem hefur verið gert opinbert sýnir 73 ára fyrrum lögreglu­mann, sem er hluti af varaliði lögreglunnar í Tulsa í Banda­ríkjunum, skjóta Eric Harris, svartan mann sem hafði tekið þátt í fíkniefna­viðskiptum, óvart. Maðurinn ætlaði að nota rafbyssu á Harris.

  3. Brasilíu­menn í yfir 100 borgum landsins mótmæltu á sunnudag Dilmu Rousseff, forseta landsins, og spillingu innan ríkis­stjórnar hennar.

  4. Útflutningur Kínverja dróst saman jum 14,6 prósent á milli mars­mánaðar 2015 og sama mánuðar árið áður. Þetta er enn eitt veikleika­merkið sem þetta næst stærsta hagkerfi heims sýnir.

  5. Yanis Varoufakis, fjármála­ráðherra Grikk­lands, hefur neitað frétt þýsks dagblaðs um að það hafi komið fulltrúum evru­ríkjanna á óvart á nýlegum fundi hversu fáar hugmyndir um efnahags­umbætur Grikkir hefðu fram að færa.

  6. Banda­ríkin og ýmsar Evrópu­þjóðir krefjast þess að vopnahlé verði komið á í Líbíu eftir að tvær árásir á erlend sendiráð í landinu voru rakin til hermanna á vegum Íslamska ríkisins.

  7. Jiang Jiemin, sem var áður einn valda­mesti maður Kína, hefur verið dreginn fyrir dómstóla fyrir mútur, misnotkun valds og ýmsa aðra meinta spillingu.

  8. Myndband sem sýnir hermenn Íslamska ríkisins eyði­leggja hina sögufrægu írösku borg Nimrud með jarðýtum, sleggjum og sprengi­efnum hefur verið birt opinber­lega.

  9. Kína hefur ákveðið að takmarka fjölda þeirra gesta sem mega ferðast til Hong Kong frá borginni Shenzhen. Ástæðan er kvartanir um að fjöldi þeirra sem sæki Hong Kong heim frá megin­landi Kína sé að vaxa of hratt.

  10. Flugvél Germanwings, sem átti fljúga frá Köln til Mílan á sunnudag, hætti við flugtak eftir að lögreglu hafði borist hótun um að sprengja væri í vélinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár