Stuðningur við þriðja orkupakkan eykst mest meðal kjósenda Vinstri grænna

90 prósent kjósenda Miðflokksins eru mjög eða frekar andvíg innleiðingu þriðja orku­pakkans.

47 prósent Íslendinga eru andvígir að þriðji orku­pakkinn taki gildi á Íslandi en 34 prósent eru fylgjandi. Um fimmtungur tekur ekki afstöðu til málsins. Stuðningur meðal kjósenda ríkis­stjórnar­flokkanna jókst frá því að síðasta könnun var gerð í maí síðastliðnum og mest meðal Vinstri grænna. Þetta kemur fram í könnun MMR sem framkvæmd var 7. til 14. júní 2019. Heildar­fjöldi svarenda var 998.

Þriðjungur lands­manna er mjög andvígur því að þriðji orku­pakkinn taki gildi og er lítill munur á milli kannana. 13 prósent eru frekar andvíg og 15 prósent frekar fylgjandi. Hlutfall þeirra sem svara „bæði og“ helst svipað milli kannana. Hlutfall þeirra sem eru mjög fylgjandi eykst um sex prósentu­stig á milli kannana, það er úr 13 prósentum í 19 prósent. Þriðjungur þátt­takenda tók ekki afstöðu til spurningarinnar, að því er kemur fram í tilkynningu MMR.

Bæði eru fleiri karlar en konur mjög andvígir, 34 prósent, eða mjög fylgjandi, 22 prósent. 32 prósent kvenna eru mjög andvígar og 15 prósent þeirra eru mjög fylgjandi. Hins vegar eru hærra hlutfall kvenna en karla frekar andvíg eða frekar fylgjandi. Stuðningur kvenna við orku­pakkann jókst um 7 prósentu­stig milli kannanna.

Stuðningur við þriðja orku­pakkann er mestur meðal svarenda 68 ára og eldri, þar af eru 22 prósent þeirra mjög fylgjandi. Hins vegar eru svarendur á aldrinum 50 til 67 ára þeir sem helst eru andvígir innleiðingu eða um 37 prósent þeirra.

Skýr munur er á milli íbúa höfuð­borgar­svæðisins og lands­byggðarinnar. 29 prósent íbúa höfuð­borgar­svæðisins eru mjög andvígir saman­borið við 41 prósent íbúa lands­byggðarinnar. 23 prósent íbúa höfuð­borgar­svæðisins eru mjög fylgjandi innleiðingu saman­borið við 12 prósent íbúa lands­byggðarinnar. Hlutfall lands­byggðarbúa sem andvíg eru innleiðingu lækkar þar að auki um 9 prósentu­stig á milli mælinga.

Stuðningur eykst meðal kjósenda ríkisstjórnarflokkanna

Kjósendur Miðflokksins eru þeir sem helstir eru andvígir innleiðingu þriðja orku­pakkans, þar af eru 75 prósent þeirra mjög andvíg. Alls eru 90 prósent þeirra mjög eða frekar andvíg.

12 prósent kjósenda Vinstri grænna voru mjög andvíg saman­borið við 33 prósent kjósenda Fram­sóknar og 30 prósent kjósenda Sjálfstæðis­flokksins. Hins vegar eru 44 prósent kjósenda Vinstri grænna mjög eða frekar fylgjandi þriðja orku­pakkanum og eykst hlut­fallið þar með um 18 prósentu­stig frá síðustu könnun.

Stuðningur jókst einnig meðal kjósenda Fram­sóknar og mælist 34 prósent sem er 12 prósentu­stiga aukning á milli kannanna.

Stuðningur meðal stjórnar­andstöðunnar jókst mest á meðal kjósenda Viðreisnar, þar sem hlut­fallið er 74 prósent. Kjósendur Samfylkingar eru einnig hlynntir, það er um 73 prósent þeirra. 43 prósent kjósenda Pírata eru frekar eða mjög hlynnt þriðja orku­pakkanum en 34 prósent mjög eða frekar andvíg.

39 prósent svarenda sem styðja ríkis­stjórnina kveðjast fylgjandi innleiðingu en 38 prósent þeirra eru andvíg. Þeir sem ekki styðja ríkis­stjórnina eru líklegri til að segjast vera andvíg innleiðingu, það er 53 prósent andvíg og 31 prósent fylgjandi.

Þeir svarendur sem hlynntir eru inngöngu í Evrópu­sambandið eru fremur fylgjandi, 69 prósent, en þeir sem eru andvígir inngöngu, það er 12 prósent þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár