„Þetta er mjög krítísk staða“

„Þetta er mjög krítísk staða,“ segir Freysteinn Sigmundsson deildar­forseti jarðvísinda­deildar Háskóla Íslands um gosóróann á Reykjanesi sem sýni að kvika sé að brjóta jarð­skorpuna „en óvíst hvert hún leitar og hvert þetta ferli fer“.

„Þetta er mjög krítísk staða – órói sem sýnir að kvika sé að brjóta skorpuna en óvíst hvert hún leitar og hvert þetta ferli fer.“
„Þetta er mjög krítísk staða – órói sem sýnir að kvika sé að brjóta skorpuna en óvíst hvert hún leitar og hvert þetta ferli fer.“ Mynd: Almannavarnir

„Það eru ekki miklar líkur á að þetta verði hættulegt en það verður kannski óþægilegt í nokkra daga,“ sagði Kristín Jóns­dóttir, hópstjóri náttúruvár­eftirlits hjá Veður­stofu Íslands, á blaðamanna­fundi vegna mögulegs eldgoss á Reykjanesi.

Um 20 mínútur yfir klukkan 14 í dag fór jarð­skjálfta­virkni að ágerast á svæðinu og kom það fram í fjölda lítilla skjálfta sem hafa verið mjög þéttir. „Þetta verður samfelld hrina sem lítur út eins og óróapúls,“ sagði Kristín um stöðuna. „Það sem gerist í fram­haldinu er að það fer þyrla í loftið til að kanna málin og við höfum fengið þær fréttir frá þeim að þau sjái ekki neitt.“

Gosóróinn, óróapúlsinn, getur verið til marks um ýmislegt sagði Kristín. „Það eru greini­lega umbrot í gangi.“ Skjálftarnir eiga upptök sín á svæði milli Litla Hrúts og Keilis. Enn á eftir að rýna betur í þau gögn sem liggja fyrir til að komast að því hvað er í gangi, sagði Kristín.

Á svæðinu hefur myndast „einhvers konar sigdæld á yfirborði“ og hugsanlega hefur orðið „meiri tognun en við höfum séð hingað til“.

Freysteinn Sigmundsson, deildar­forseti jarðvísinda­deildar Háskóla Íslands, var einnig á fundinum. Rifjaði hann upp að í byrjun vikunnar hafi sést með greiningu gagna að jarðskorpu­hreyfingar mætti rekja til kviku­gangs „sem væri á ferðinni“. Þá þegar hafi verið ljóst að ástandið væri „krítískt“. Og núna kemur „þessi órói“. Gosórói getur verið af mismun­andi gerð, sagði Freysteinn. „Það er kvika að brjóta sér leið og við þurfum að sjá hvert að þetta leiðir,“ sagði hann. „Þetta er mjög krítísk staða – órói sem sýnir að kvika sé að brjóta skorpuna en óvíst hvert hún leitar og hvert þetta ferli fer.“

Hann benti á að kvika finni sér alltaf auðveldustu leið upp á yfirborð. Tíma­ramminn gæti verið allt frá nokkrum klukku­stundum upp í nokkra daga. „Við gætum verið að horfa á næstu klukku­stundir, þetta getur gerst hratt, en getur líka teygst á langinn,“ sagði hann og benti á að það hafi orðið raunin í Holu­hrauns­gosinu – um tvær vikur liðu frá fyrstu merkjum um gosóróa og þar til kvikan braut sér leið upp á yfirborð. „En núna er hún nálægt yfirborði. Ég myndi halda að það þurfi að fylgjast mjög náið með næstu klukku­tímana en þetta gæti dregist umfram það.“

Víðir Reynisson, yfir­lögreglu­þjónn hjá almanna­vörnum, sagði að staðan smell­passaði inn í þær sviðs­myndir sem teiknaðar hefðu verið upp undan­farið. „Stóra málið er að þetta eru engar stórar hamfarir sem eru að fara að gerast. Núna erum við að virkja allt almanna­varna­kerfið til að vera algjör­lega á tánum ef þörf krefur.“

Vísinda­menn Veður­stofu Íslands hafa staðsett gosóróann suður af Keili við fjallið Litla Hrút. Ef gos hefst á þessum slóðum er talið að engin hætta steðji að byggð. Hraun á þessum slóðum er um 7.000 ára gamalt.

Vika er síðan að jarð­skjálfta­hrina hófst á Reykja­nesskaga með 5,7 stiga skjálfta við Fagradals­fjall. Hundruð skjálfta hafa orðið síðan og margir þeirra yfir 4 að stærð.

Frá landnámi hefur þrisvar sinnum gosið á Reykjanesi, síðast á árunum 1211-1240 og eru þeir atburðir kallaðir Reykja­neseldar. Á því tímabili gaus nokkrum sinnum, þar af urðu þrjú gos í eldstöðva­kerfi sem kennt er við Svarts­engi. Eldgosin voru hraungos á 1-10 kílómetra löngum gossprungum. Gosvirkni á Reykjanesi-Svarts­engi einkennist af goslotum eða eldum sem geta varað í áratugi og má búast við goslotu á um 1100 ára fresti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár