Grænlendingar stofna samhæfingarhóp vegna hernaðarógnar frá Bandaríkjunum

Lands­stjórn Grænlands býr sig undir það versta vegna þess að Banda­ríkin útiloka ekki hernaðar­aðgerðir til að yfirtaka landið.

Múte B. Egede
Múte B. Egede Fjár­mála­ráð­herra Græn­lands og fyrr­ver­andi for­maður land­stjórn­ar­innar sagði Græn­lend­inga þurfa að búa sig undir það versta, þótt ekk­ert bendi til hern­að­ar­í­hlut­unar enn. Mynd: AFP

Grænlenska landstjórnarin, Naalakkersuisut, hélt blaðamanna­fund fyrir skemmstu vegna hækkunar viðbúnaðar­stigs á Grænlandi sem andsvar við hótunum Bandaríkja­forseta um að yfirtaka landið.

Á fundinum sögðu Jens-Frederik Nielsen, formaður lands­stjórnarinnar, og Múte B. Egede fjármála­ráðherra og fyrr­verandi formaður lands­stjórnarinnar, að framundan væru aðgerðir til að mæta ógninni frá Banda­ríkjunum.

„Við verðum að vera viðbúin enn meiri þrýstingi, og þótt ekkert bendi til hernaðar­íhlutunar verðum við að búa okkur undir allt, því þjóðin sem þrýstir á okkur hefur ekki skipt um skoðun,“ hefur grænlenski miðillinn Sermitsiaq eftir Múte B. Egede á fundinum.

Hann sagði alla í samfélaginu „verða fyrir tilfinninga­legum og andlegum áhrifum. Þetta finnum við öll, frá börnum til aldraðra, þar sem við ræðum um hvernig ástandið er á Grænlandi.“

Á fundinum kynntu Egede og Nielsen að stofnaður verði samhæfingar­hópur viðbragðs­aðila sem mun starfa samkvæmt ákvörðunum lands­stjórnarinnar.

Í samhæfingar­hópnum eru fulltrúar frá ýmsum ráðuneytum, lögreglunni og sveitar­félögum.

„Við verðum að vera viðbúin og skapa öryggi í samfélaginu. Þótt það hljómi ólíklega viljum við vera viðbúin öllu sem getur gerst,“ sagði Egede á fundinum.

Ástæðan er að „hinn aðilinn,“ sem telja má að sé Banda­ríkin, hafi ekki útilokað hernaðar­aðgerðir gegn Grænlandi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár