Sunnlenskir sveitarstjórar hugsi yfir auknum þungaflutningum um Suðurland

Bæjar­stjórinn í Árborg segir ljóst að byggja þurfi upp nýjan veg umhverfis Selfoss til að anna stór­kost­legri aukningu vöru­flutninga úr austri og til Þorláks­hafnar, óháð því hvort fyrir­hugaðir flutningar Kötlu­vikurs af Mýrdals­sandi verði að veruleika.

Bæjarstjórinn í Árborg lítur svo á að það þurfi að byggja upp nýjan veg, ýmist sunnan við Selfoss eða í Ölfusi, til að höndla þungaflutninga austan að og til Þorlákshöfn.
Bæj­ar­stjór­inn í Árborg lítur svo á að það þurfi að byggja upp nýjan veg, ýmist sunnan við Selfoss eða í Ölfusi, til að höndla þunga­flutn­inga austan að og til Þor­láks­höfn. Mynd: Pexels

Gísli Halldór Halldórsson bæjar­stjóri í Árborg segir fyrir­sjáanlegt að vöru­flutningar úr austri og til Þorláks­hafnar muni aukast stórkost­lega á næstu árum, jafnvel þrátt fyrir að ekki kæmi til þeirra stór­felldu vikur­flutninga úr landi Hjörleifs­höfða á Mýrdals­sandi sem áætlanir eru uppi um að ráðast í af hálfu þýska fyrir­tækisins STEAG Power Minerals.

Bæjar­stjórinn segir í svari til Kjarnans að hann og pólitísk forysta bæjar­stjórnar hafi vakið athygli á því að útlit sé fyrir mjög aukna flutninga í gegnum Selfoss og að þessi mál hafi verið rædd margoft á fundum með Vega­gerðinni og einnig við alþingis­menn og ráðherra, er þeir hafi rekið á fjörur Árborgara.

Hann segir að sveitar­félagið hafi þegar gripið til aðgerða til að leysa fyrir­sjáanlegan vanda til næstu örfárra ára, en það hafi reyndar ekki verið gert með þá stór­felldu vikur­flutninga sem fyrir­hugaðir eru um Suður­landið til hliðsjónar.

Viðbrögðin fólust í því að leggja vegbút sem lengir götuna Suðurhóla, sem liggur í jaðri byggðar á Selfossi, yfir á Gaul­verja­bæjarveg. Þessi ráðstöfun kemur í veg fyrir að allir vöru­flutningar frá austri til vesturs þurfi að fara um Austurveg, sem kalla má aðal­götuna í bænum og er hluti af þjóðvegi 1 í dag.

„Suður­hólarnir í Árborg liggja hinsvegar í gegnum íbúa­byggðir á Selfossi og henta engan veginn fyrir stóraukna flutninga fram­tíðarinnar, með eða án vikur­flutninganna frá Mýrdals­sandi. Þetta höfum við bent Vega­gerðinni og stjórn­málamönnum á,“ segir Gísli Halldór.

Nýr vegur suður af Selfossi eða um Ölfusið

Selfyssingar munu losna við þjóðveg 1 út úr bænum þegar ný brú yfir Ölfusá verður tilbúin, en þegar hún verður komin í notkun mun þó áfram liggja beinast við að beina þeim vöru­flutningum sem koma að austan og til Þorláks­hafnar eða áfram út á Reykjanes í gegnum þéttbýli bæjarins.

Bæjar­stjórinn segir að með eða án þeirra miklu vikur­flutninga sem fyrir­hugaðir eru frá Mýrdals­sandi sé fyrir­sjáanlegt að vöru­flutningar þessa leiðina aukist stórkost­lega. Áhrifa­þætti í því segir hann vera stóraukið fiskeldi á Aust­fjörðum og sömuleiðis aukna matvæla­framleiðslu á Suður­landi.

Gísli Halldór bendir á tvær leiðir, sem hann segir hugsanlegar til lausnar. Önnur væri sú að byggja upp nýjan veg nokkuð suður af Selfossi. Segir hann bæjar­yfirvöld hafa bent á stað­setningu Votmúla­vegar í því sambandi, en að ef til vill ætti slíkur vegur að vera enn sunnar.

„Hin leiðin er að fara að Hvera­gerði og þaðan suður Ölfusið til Þorláks­hafnar, sem er sú leið sem Vega­gerðin horfir mest til. Í báðum tilvikum þarf að byggja upp nýjan veg. Ég læt aðra um að dæma hvor leiðin er heppilegri. Beinasta leiðin austan að til Þorláks­hafnar liggur auðvitað í gegnum Árborg, en okkur er síst af öllu kappsmál að fá alla þessa þunga­umferð í gegnum sveitar­félagið. Umfram allt viljum við þó leggja okkar af mörkum til að stuðla að farsælli lausn,“ segir Gísli Halldór.

Áhugi hjá Rangæingum á að nýta Landeyjahöfn meira

Lilja Einars­dóttir, sveitar­stjóri Rangár­þings eystra, segir í svari við fyrir­spurn Kjarnans að fyrir­hugaðir vikur­flutningar frá Mýrdals­sandi hafi til umræðu á vettvangi sveitar­stjórnarinnar.

„Vissulega höfum við velt þessu fyrir okkur og bent á þessa gríðar­legu umferð sem þessu myndi fylgja. Undan­farinn áratug hefur verið sívaxandi álag á Þjóðveg 1 og myndi þetta síður en svo draga úr því álagi,“ segir Lilja.

Landeyja­höfn er í Rangár­þingi ytra, en eins og rakið var í umfjöllun Kjarnans í gær var viðrað í umsögn um tillögu að mats­áætlun vegna vikur­námsins á Mýrdals­sandi að skoðað yrði hvort hægt væri að skipa vikrinum upp í Landeyja­höfn, en ekki í Þorláks­höfn.

Í athuga­semdum sem verkfræði­stofan Efla sendi Skipulags­stofnun fyrir hönd framkvæmda­aðilans sagði að það hefði verið skoðað á fyrri stigum, en í ljós hefði komið að samkvæmt lögum og reglu­gerðum um Landeyja­höfn megi einungis nýta höfnina undir siglingar með farþega til og frá Vestmanna­eyjum.

Lilja segir þó að það hafi verið áhugi hjá sveitar­stjórninni um að „nýta Landeyja­höfn meira en gert er í dag,“ en fullljóst sé að það til þess þyrfti að koma til endurbóta og uppbyggingar á höfninni sjálfri og svæðinu umhverfis hana. „En Landeyja­höfn er á höndum ríkisins sem er afar óvenjulegt,“ bætir sveitar­stjórinn við.

Hún segir hlut­aðeigandi aðila hafa viðrað þessa umræðu við fyrri sveitar­stjóra í Rangár­þingi eystra og að sveitar­stjórnin hafi alltaf verið opin fyrir umræðu um hvers konar uppbyggingu og ný tækifæri sem varði Landeyja­höfn.

Á Hellu er fólk hugsi

Ágúst Sigurðsson, sveitar­stjóri í Rangár­þingi ytra, segir í svari til Kjarnans að sveitar­stjórnin þar hafi ekki fengið neina kynningu á málinu né beiðni frá Skipulags­stofnun um að veita umsögn um það.

„Höfum bara séð þetta í fréttum,“ segir Ágúst, um fyrir­ætlanir STEAG Power Minerals og fyrir­hugað umfang vikur­flutninga, sem leið liggur um Suður­landið og þar með í gegnum þéttbýlið á Hellu.

Hann segir bæjar­yfirvöld „að sjálfsögðu hugsi yfir málinu“ en að sérstök umræða hafi ekki verið tekin um það, enn sem komið er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár