Landhelgisgæslan tekur við formennsku í Arctic Coast Guard Forum

Land­helg­is­gæsla Íslands tók í dag við for­mennsku í Arctic Coast Guard Forum, sam­tökum strand­gæslu­stofn­ana á norð­ur­slóðum, til næstu tveggja ára.

Land­helg­is­gæsla Íslands tók í dag við for­mennsku í Arctic Coast Guard Forum, sam­tökum strand­gæslu­stofn­ana á norð­ur­slóðum, til næstu tveggja ára. Um er að ræða sam­ráðs­vett­vang átta strand­gæslu­stofn­ana en finnska strand­gæslan hefur farið með for­mennsku í ráð­inu und­an­farin tvö ár. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Land­helg­is­gæsl­unni.

Georg Kr Lárusson, for­stjóri Land­helg­is­gæsl­unnar, veitti sér­stökum heið­urs­platta við­töku við hátíð­lega athöfn í Turku og árétt­aði mik­il­vægi sam­starfs stofn­an­anna á norð­ur­slóðum. Hann hrós­aði finnsku strand­gæsl­unni fyrir vel unnin störf á und­an­förnum árum.

Á meðan Land­helg­is­gæslan gegnir for­mennsku verður sér­tök áhersla lögð á að efla sam­starf ríkj­anna átta enn frekar þegar kemur að leit og björgun auk þess sem meng­un­ar­varnir og umhverf­is­mál verða sett á odd­inn. Þá verður umfangs­mikil æfing haldin á Íslandi á vor­mán­uðum 2021.

Und­an­farna daga hafa sér­fræð­ingar norð­ur­skauts­ríkj­anna átta fundað um helstu áskor­anir á svæð­inu auk þess sem æfingin Polaris 2019 fór fram á þriðju­dag. Þar voru æfð við­brögð við neyð­ar­á­standi um borð í skemmti­ferða­skipi undan ströndum Finn­lands. TF-SIF, flug­vél Land­helg­is­gæsl­unnar, tók þátt auk þess sem starfs­menn stofn­un­ar­innar voru í æfing­ar­stjórn í sam­hæf­ing­ar­stöð finnsku strand­gæsl­unnar.

Strand­gæslu­stofn­anir átta ríkja, Banda­ríkj­anna, Dan­merkur, Finn­lands, Íslands, Kanada, Noregs, Rúss­lands og Sví­þjóðar, mynda sam­ráðs­vett­vang­inn en þjóð­irnar und­ir­rit­uðu yfir­lýs­ingu um áfram­hald­andi sam­starf á fundi for­svars­manna stofn­an­anna í Turku í Finn­landi í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár