Útveggir í Orkuveituhúsi kostuðu hundruð milljóna

Kostn­aður vegna slæms ásig­komu­lags á höf­uð­stöðvum Orku­veitu Reykja­víkur nemur millj­örðum.

Orku­veita Reykja­víkur borg­aði ríf­lega 219 millj­ónir króna, meira en 400 millj­ónir að núvirði, fyrir útveggja­kerfið umdeilda sem virð­ist hafa brugð­ist með þeim afleið­ingum að raka­skemmdir og mygla hafa gert vest­ur­hús höf­uð­stöðva fyr­ir­tæk­is­ins ónot­hæft. 

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Áætlað er að það muni kosta um tvo millj­arða að gera nauð­syn­legar úrbætur á hús­inu, eins og fram hefur komið.

Vest­ur­hús höf­uð­stöðva Orku­veitu Reykja­víkur er illa farið af raka­semdum og það kostar millj­arða króna að gera við það. Málið var rætt á stjórn­ar­fundi í Orku­veit­unni fyrr í vik­unni en ákvörðun um til hvaða aðgerða verði gripið liggur ekki fyr­ir. Reykja­vík­ur­borg á 93,5 pró­sent hlut í Orku­veit­unn­i.

Þar segir að sex leiðir hafi verið skoð­aðar til að leysa mál­ið. Áætl­aður kostn­aður þeirra er á bil­inu 1.500-3.020 millj­ónir króna. Sá kostn­aður bæt­ist við þegar áfall­inn kostnað vegna skemmd­anna sem er 460 millj­ónir króna.

Bygg­ing höf­uð­stöðva Orku­veit­unnar var umdeild á sínum tíma. Í skýrslu úttekt­ar­nefndar um Orku­veit­una, sem birti nið­ur­stöður sínar í októ­ber 2012. Bygg­inga­kostn­aður varð á end­anum langt umfram áætl­un. Upp­runa­lega átti bygg­ingin að kosta 2,3 millj­arða króna en hún kost­aði á end­anum 5,3 millj­arða króna á verð­lagi hvers fram­kvæmda­árs, eða 8,5 millj­arða króna á verð­lagi árs­ins 2010.

Í úttekt­ar­skýrsl­u segir að hluti skýr­ing­anna fyrir auknum bygg­inga­kostn­aði hafi verið rak­inn til þess að um eitt þús­und fer­metrar bætt­ust við á bygg­inga­tím­anum og að ekki hafi verið gert ráð fyrir ýmsum öðrum stórum liðum í áætl­un­um. „Þessi atriði voru ekki borin undir stjórn Orku­veitu Reykja­víkur eða um þau fjallað meðan á bygg­ingu húss­ins stóð, og ekki verður séð að athygl­i ­stjórn­ar­innar hafi verið vakin sér­stak­lega á þessum atriðum á bygg­ing­ar­tíma húss­ins. Svo virð­ist að auki sem mik­ill hraði hafi ein­kennt verk­ið, enda var unnið kapp­sam­lega að því að koma rekstri fyr­ir­tæk­is­ins undir eitt þak, og má hluta af auknum kostn­að­ar­út­gjöldum meðal ann­ars rekja til þess[...]Ekki verður heldur fram hjá því litið að Orku­veita Reykja­víkur hefur í dag ekki þörf fyrir svo mik­ið hús­næði, enda stendur nú einn hluti hús­næð­is­ins nær auð­ur­. Hér er í senn um að ræða veru­legar fjár­hæðir og fjár­fest­ingu fyr­ir­tækis í op­in­berri eigu, sem ekki nýt­ist nema að hluta til í rekstri þess. Að mat­i út­tekt­ar­nefnd­ar­innar hefði verið rétt að kynna stjórn fram­vindu bygg­ing­ar­inn­ar og áfallandi kostn­að, og jafn­framt hvort rétt væri að draga úr ­bygg­ing­ar­magni eða minnka kostnað á meðan á bygg­ingu stóð, til þess að upp­haf­legar áætl­anir stæð­ust. Svo var ekki gert, og vekur það sér­staka ­at­hygli að end­an­legur kostn­aður vegna húss­ins virð­ist ekki hafa legið fyr­ir­ ­fyrr en í lok árs 2005, og að á tím­anum hafi komið upp liðir sem gleymst hafi að gera ráð fyrir í hönnun verks­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár