Rússar gagnrýna harðlega áætlun Úkraínu og Evrópu um friðargæsluliða

Stjórn­völd í Moskvu kalla Úkraínu og stuðnings­þjóðir í Evrópu „stríðs­öxul“ og vara við því að samkomulag sem Evrópu­ríkin hafa gert um friðar­gæslu væri fjarri öllu því sem Rússar gætu sætt sig við til að binda enda á stríðið.

Í fyrstu yfir­lýsingu sinni eftir að bandamenn Úkraínu sögðust hafa samþykkt helstu öryggis­ábyrgðir fyrir úkraínsk stjórn­völd á leiðtoga­fundi í París, gagnrýndu Rússar áætlunina harðlega í morgun.

Í yfir­lýsingu rússneskra stjórn­valda var áætlunin kölluð „hernaðar­sinnuð“ og virtust slá á vonir um að hún myndi leiða til skjótra lykta átakanna sem brátt hafa staðið yfir í fjögur ár.

Evrópskir leiðtogar og sendi­fulltrúar Banda­ríkjanna tilkynntu fyrr í vikunni að öryggis­ábyrgðir fyrir Úkraínu myndu fela í sér eftirlits­kerfi undir forystu Banda­ríkjanna og evrópskt fjöl­þjóðlegt herlið sem yrði sent á vettvang ef vopnahlé næðist.

„Allar slíkar sveitir og mannvirki verða álitin lögmæt hernaðar­skotmörk fyrir rússneska herinn,“ sagði Maria Zakharova, talskona rússneska utan­ríkis­ráðuneytisins, í yfir­lýsingu.

Rússnesk stjórn­völd hafa ítrekað varað við því að þau myndu ekki sætta sig við að nokkurt NATO-ríki sendi friðar­gæslulið til Úkraínu og hótað að slíkt lið gæti orðið fyrir skotárás Rússa á meðan allsherjar­árás þeirra heldur áfram.

„Nýjar hernaðar­sinnaðar yfir­lýsingar svokallaðs bandalags viljugra þjóða og stjórnarinnar í Kænugarði mynda saman raun­verulegan stríðs­öxul,“ sagði Zakharova og kallaði áætlanir banda­manna Kænugarðs „hættulegar“ og „eyði­leggjandi“.

Örygg­is­á­byrgðirVolody­myr Zelenskyy, for­seti Úkraínu, Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, og Keir Starmer, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, und­ir­rita yfir­lýs­ingu um beit­ingu her­sveita í Úkraínu eftir vopna­hlé á leið­toga­fundi „banda­lags hinna stað­föstu“ um örygg­is­á­byrgðir fyrir Úkraínu

Vilja­yfir­lýsingin sem undir­rituð var í París myndi fela í sér að Bretland, Frakkland og aðrir evrópskir bandamenn sendi herlið til Úkraínu eftir að vopnahlé kæmist á.

Nákvæmar upplýsingar um herliðið og hvernig það myndi bregðast við liggja ekki fyrir og Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segist enn ekki hafa fengið „ótvírætt“ svar um hvað þau myndu gera ef Rússar réðust aftur inn í landið.

Leiðtogar Úkraínu hafa einnig sagt að erfiðustu spurningunum í hvers kyns mögulegu samkomu­lagi um að binda enda á átökin svo sem spurningum um yfirráð yfir landsvæðum í Donbas-héraði í austri og örlög Zaporizhzhia-kjarnorku­versins sem er á valdi Rússa, væri enn ósvarað. 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár