Spyr hvort ríkisstjórnin reyni að knýja fram samþjöppun í ferðaþjónustu

Minni­hluti efnahags- og viðskipta­nefndar gagnrýnir skeytingar­leysi ríkis­stjórnarinnar gagnvart smærri rekstrar­aðilum í ferða­þjónustu. Nefndin spyr hvort það sé óorðuð stefna hennar að reyna að fækka fyrir­tækjum í greininni.

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhann Páll Jóhanns­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Seinagangur ríkis­stjórnarinnar í að fram­lengja viðspyrnu­styrki og önnur sambærileg úrræði vegna faraldursins og sótt­varnar­aðgerða gegn honum vekur upp spurningar hvort ríkis­stjórnin reyni að knýja fram samþjöppun í ferða­þjónustu. Þetta kemur fram í minnihluta­áliti efnahags- og viðskipta­nefndar um fram­lengingu laga­frumvarps um viðspyrnu­styrki, sem birt var á vef Alþingis í gær.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar er fram­sögumaður álitsins, en að því standa einnig Þórhildur Sunna Ævars­dóttir þingmaður Pírata og Ásthildur Lóa Þórs­dóttir, þingmaður Flokks fólksins.

Samkvæmt þeim eru áhyggjur um að stjórn­völd stefni að því að fækka fyrir­tækjum í ferða­þjónustu og auðvelda stærstu fyrir­tækjunum að kaupa upp þau smærri skiljanlegar, þar sem tveir ráðherrar hafi sterk tengsl við tvö af stærstu ferða­þjónustu­fyrirtækjum landsins. Jóhann Páll, Þórhildur Sunna og Ásthildur Lóa bæta svo við að þessi fyrirtæki hafi notið gríðar­legs ríkis­stuðnings í heims­faraldrinum.

Minni­hlutinn leggur því til að laga­frumvarpið um viðspyrnu­styrki verði breytt þannig að það nái til fleiri fyrir­tækja sem orðið hafa fyrir miklu tjóni vegna veirunnar og sóttvarnaragðerða. Þó leggur hann einnig til að styrkjunum verði einungis beint til fyrir­tækja sem þurfa á þeim að halda og fara eftir lögum og reglum.

Á meðal tillagna er að lágmarks­tekjufall fyrir­tækja sem fá styrkinn verði lækkað úr 40 prósentum niður í 30 prósent og að umsóknar­frestur fyrir þennan styrk renni ekki út fyrr en í lok júní.

Einnig leggja Jóhann Páll, Þórhildur Sunna og Ásthildur Lóa til að skilgreiningum á tekjum yrði breytt, svo fyrirtæki sem hafa einungis fengið minni tekjur vegna fjármagns­hreyfinga en ekki samdráttar í sölu geti ekki nýtt sér styrkinn. Þar að auki ættu fyrirtæki sem hafa orðið uppvís að launa­þjófnaði eða ekki staðið skil af skatt­framtali ekki að geta fengið styrkinn.

Uppfært 15:42: Öllum tillögum þing­mannanna þriggja var hafnað á Alþingi í dag með 31 atkvæði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár