Forseti Tyrklands réttir fram sáttahönd til Rússa - Viðskiptabann á Tyrki

Mikil spenna ríkir enn í samskiptum Rússa og Tyrklands. Bandaríkja­menn hafa kallað eftir auknum herafla við landamæri Tyrklands og Sýrlands. Rússar hafa þegar sett viðskipta­bann á Tyrki.

Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, hefur rétt út sáttahönd til Rússlands og segir tyrknesk stjórn­völd tilbúin að vinna með þeim að hernaðar­aðgerðum við landamæri Tyrklands og Sýrlands. Hann varar Rússa enn fremur við því að „leika sér að eldinum“ og hóta hefndar­aðgerðum vegna þotunnar sem Tyrkir skutu niður við landamæri Tyrklands og Sýrlands í síðustu viku, með þeim afleiðingum að annar flugmanna þotunnar lést en hinn komst af við illan leik, eftir tólf tíma björgunar­aðgerð sérsveitar rússneska hersins. Þetta kemur fram á vef breska ríkis­útvarpsins BBC.

Tyrkir njóta stuðning Atlantshafs­banda­lagsins NATO, en Rússar hafa byggt sínar hernaðar­aðgerðir í Sýrlandi á víðtæku samstarfi við stjórnarher Sýrlands, þar sem Assad forseti er æðsti yfirmaður.

Bandarísk stjórn­völd hafa kallað eftir að hernaðumsvif Tyrkja, og eftir atvik bandalags­þjóða þeirra, verði aukin við landamæri Sýrlands.

Rússar hafa sakað Tyrki um að hafa skotið þotuna niður í órétti, þar sem hún hafi ekki verið í lofthelgi Tyrklands heldur Sýrlands. Þá hafi viðvaranir ekki komið fram, eins og tyrknesk stjórn­völd hafa ítrekað sagt.

Rússar hafa ekki brugðist við sáttaboði Tyrkja, en Vladímir Pútín, forseti Rússlands, hefur sagt að þessar hernaðar­aðgerðir Tyrkja gegn Rússum geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir Tyrki. Nú þegar hefur verið gripið til þess að setja viðskipta­bann á tyrkneskar vörur í Rússlandi, og að þá verða samningar um leyfi fyrir tyrkneska starfs­menn í Rússlandi ekki fram­lengdir.

Frekari aðgerðir Rússa hafa ekki verið kynntar enn sem komið er, en Pútín segir að Rússar muni halda áfram hernaðar­aðgerðum sínum í Sýrlandi gegn íslamska ríkinu, og hefur hvatt þjóðir heimsins til þess að sameinast í þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár