Google gerði mestu breytingar á útliti sínu frá upphafi

Google hefur ráðist mestu útlits­breytingar á vörum sínum frá stofnun. Í dag breytti fyrir­tækið merki sínu og eru það mestu breytingar á merkinu frá stofnun fyrir­tækisins árið 1998. Nýja merkið skartar nýju stein­skriftar­letri og kemur í stað hins hefðbunda merkis sem studdist við antíkvu.

Breytingarnar koma í kjölfar þess að nafni fyrir­tækisins sem rekur Google var breytt í Alphabet til að aðgreina leitar­vélina frá miklu víðtækari starfsemi fyrir­tækisins. Kjarninn greindi frá nafna­breytingunni í ágúst. Stofn­endur Google, þeir Larry Page og Sergey Brin, segjast vona að breytt skipulag gefi þeim frelsi til að sækja fram í tækni­nýjungum.


Page útskýrir Alphabet sem samansafn fyrir­tækja. Þeirra stærst verður Google með leitar­vélina, Maps kortið, Android stýri­kerfið, Youtube og fleira innanborðs. Þá verður tækni­þróunar­félagið X Lab rekið sem sérstök eining undir Alphabet en félagið hefur til þessa kallast Google X og meðal annars þróað sjálf­keyrandi bíla. Í póstinum tiltekur Page sérstak­lega þróun X Lab á drónum. Fjár­festinga­sjóðirnir Venture og Capital verða reknir sem sérstök dóttur­félög Alphabet.

Gamla merkið og það nýja.

Nýja letur­gerðin hefur verið kölluð Product Sans og, samkvæmt tilkynningu frá Google, byggir á hugmyndum úr barna­skólabókum en heldur hlutleysi sínu. Nýja merkið er heldur ekki lengur föst mynd heldur er hún hreyfanleg í takt við nútíma vefþróun. Notendur þjónustu Google munu á næstunni sjá útlit appa, vefsíða og merkja breytast í takt við þetta.


Gamla merkið og það nýja.
Gamla merkið og það nýja.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár