Google endurskipulagt og verður Alphabet

Bandaríska fyrir­tækið Google, eitt stærsta tækni­fyrirtæki heims, mun héðan í frá heita Alphabet. Larry Page, annar stofnenda Google sem upphaf­lega var leitarvél en rekur í dag miklu víðtækari starfsemi, tilkynnti um veiga­miklar breytingar á uppbyggingu félagsins eftir lokun markaða í Banda­ríkjunum í dag. Það gerði hann á bloggsíðu Google. Starfsemi Google verður með þessu móti brotin niður í smærri einingar undir móður­félaginu Alphabet.

BREAKING: Google creates new company called Alphabet, restructures stock http://t.co/6cBqmhe2Kg

— Bloomberg Business (@business) August 10, 2015

Bandarískir fjöl­miðlar greina frá áformum stjórn­enda félagsins í dag. Í pistli á bloggsíðu Google, og lesa má hér, útskýrir Larry Page að hann verði forstjóri nýja eignarhalds­félagsins og Sergey Brin, hinn stofnandi Google, verði forseti þess. Þeir vonast til að breytt skipulag gefi þeim frelsi til að sækja fram í tækni­nýjungum. Page segir að þeir muni nýta krafta sína í framtíðar­verkefni og hvar sem þeirra er þörf hverju sinni.


Page útskýrir Alphabet sem samansafn fyrir­tækja. Þeirra stærst verður Google með leitar­vélina, Maps kortið, Android stýri­kerfið, Youtube og fleira innanborðs. Þá verður tækni­þróunar­félagið X Lab rekið sem sérstök eining undir Alphabet en félagið hefur til þessa kallast Google X og meðal annars þróað sjálf­keyrandi bíla. Í póstinum tiltekur Page sérstak­lega þróun X Lab á drónum. Fjár­festinga­sjóðirnir Venture og Capital verða reknir sem sérstök dóttur­félög Alphabet.


Greint var frá breytingunum skömmu eftir lokun markaða í Banda­ríkjunum í dag, eða skömmu fyrir klukkan 21 að íslenskum tíma. Hlutabréf í Google, sem nú heitir reyndar Alphabet, hafa rokið upp á eftir­markaði.

Google shares are spiking after hours on news of corporate restructuring. http://t.co/XG6T8Y5xnM pic.twitter.com/seZhLnw69H

— Bloomberg Markets (@markets) August 10, 2015
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár