Amazon prófar drónaheimsendingar á leynistað í Kanada

Stór­fyrirtækið Amazon stendur nú í prófunum á dróna­heimsendingum á leyni­legum stað í Kanada, samkvæmt fréttum Guardian um málið. Guardian fékk fékk að heimsækja staðinn þar sem fjöldi starf­manna vinnur nú við prófanir.

Amazon hefur reynt að fá leyfi í Banda­ríkjunum til þess að ráðast í prófanir á þjónustunni í Washington-ríki, en hingað til hefur verið fátt um svör og fyrir­tækið hefur því hafið tilraunirnar í Kanada í staðinn. Amazon vonast til þess að geta sett heimsendingar­þjónustu í gegnum drónaflug á laggirnar fljótlega, og kallar þjónustuna Prime Air.

Fyrir­tækið vill bjóða upp á að drónar fljúgi pökkum á áfanga­stað innan við þrjátíu mínútum eftir að pöntun er gerð hjá Amazon á netinu. Drónarnir eiga að geta flogið minnst sextán kílómetra vegalengd og bera pakka sem eru allt að 2,2 kíló á þyngd. 86 prósent allra sendinga Amazon eru undir þessari þyngd.

„Við teljum að þessi nýja tækni bjóði upp á mikinn ávinning fyrir viðskipta­vini okkar, sem við teljum að muni elska þetta, og fyrir samfélagið í breiðara samhengi,“ segir Paul Misener, aðstoðar­forstjóri alþjóða­mála hjá Amazon, við Guardian. „Af hverju ættum við að bíða?“

Gur Kimchi, sem er hönnuður og yfirmaður Prime Air, segir við blaðið að vonir hafi alltaf staðið til þess að hægt yrði að gera prófanir í Banda­ríkjunum, í nágrenni við höfuð­stöðvar fyrir­tækisins í Seattle. Þar hafi dróna­flugið hins vegar verið takmarkað við innan­húsflug og nú þurfi að prófa þjónustuna utandyra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár