Sænska laginu spáð sigri í Eurovision - Ástralir lenda í því fjórða

Helstu veðbankar spá framlagi Svía í Eurovision, laginu Heroes í flutningi Måns Zelmerlöw, sigri í úrslitum söngva­keppninnar sem fram fara í Vínarborg í kvöld.

Samkvæmt veðmála­síðunni Oddschecker, sem heldur utan um veðmála­stuðla helstu veðbanka heims, hafnar Svíar í efsta sætinu, Rússar öðru, Ítalir í því þriðja og Ástralir, sem fá nú að taka þátt í keppninni í tilefni af 60 ára afmæli Eurovision, hafna í því fjórða. Þá kemur Belgía fast á hæla Ástralíu í fimmta sætinu.

Sænska lagið hefur fengið sinn skerf af gagnrýni, en Svíar hafa verið sakaðir um að senda stolið lag til keppninnar.

Sænska lagið þykir svipa vandræða­lega mikið til lagsins Lovers on the Sun með tónlistar­manninum David Guetta, sem hélt tónleika hér á landi þann 16. júní síðastliðinn. Umrætt lag Guetta má sjá og heyra hér að neðan, dæmi hver fyrir sig.

Þá er söngvari sænska lagsins sömuleiðis umdeildur, en hann hefur í gegnum tíðina látið meiðandi ummæli falla í garð samkyn­hneigðra. Til að mynda neyddist Zelmerlöw til að biðjast afsökunar á ummælum sem hann lét falla í matreiðslu­þætti í heima­landinu, þar sem hann sagði að það væri ekki náttúrulegt fyrir tvo karlmenn að vilja sofa saman, að samkyn­hneigð væri afbrigðileg og að samkyn­hneigðir ættu ekki að vera foreldrar. Sjá umfjöllun The Independent um málið.

Hvort fordómar Zelmerlöw í garð hinsegin fólks muni verða honum að falli í kvöld er erfitt að spá fyrir. Í það minnsta eru helstu veðbankar heims á því að hann muni fara með sigur úr býtum í Söngva­keppni Evrópskra sjónvarps­stöðva, en hann verður tíundi flytjandinn á sviðið í Vín í kvöld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár