240 umsóknir í Startup Reykjavík

Startup Reykja­vík viðskipta­hraðallinn fer fram í þriðja sinn nú í sum­ar og stendur yfir frá 16. júní til 23. ág­úst. Sem fyrr barst mik­ill fjöldi um­sókna. Brátt verður frá því greint hvaða tíu verk­efni munu taka þátt í sum­ar.

Samtals bárust 240 um­sókn­ir þetta árið sem er 16% aukn­ing frá fyrra ári, að því er segir í tilkynnningu. Ari­on banki og Klak Innovit standa að Startup Reykja­vík, að því er seg­ir í frétta­til­kynn­ingu.

Ein­ar Gunn­ar Guðmunds­son, for­svars­maður ný­sköp­un­ar hjá Ari­on banka, segist í tilkynningu ánægður með hvernig Startup Reykjavík hefur náð að festa sig í sett og eflt nýsköpunar­umhverfið á Íslandi.

Þau frumkvöðla­teymi sem val­in verða til þátt­töku verða til­kynnt á Startup Ice­land ráðstefn­unni, sem hefst í næstu viku. Teymin sem verð valin til áfram­haldandi þátttöku munu fá tvær milljónir í hlutafé gegn 6% hlut.

2 millj­ón­ir í hluta­fé frá Ari­on banka gegn 6% hlut­deild í fyr­ir­tæk­inu

10 vikna tímabil þar sem teymin geta fengið ráðgjöf frá men­tor­um víðs veg­ar að úr at­vinnu­líf­inu

Sam­eig­in­leg aðstaða allra viðskiptateym­anna

Tæki­færi til að kynna sig og verk­efni sín fyr­ir fjár­fest­um á loka­degi verk­efn­is­ins

Ari­on banki hef­ur fjár­fest í tutt­ugu sprota­fyr­ir­tækj­um í gegn­um Startup Reykja­vík á síðustu tveim­ur árum og mun fjárfesta í tíu til viðbótar í sumar, á þeim forsendum sem að framan greinir.

Ein­ar Gunn­ar Guðmunds­son, for­svars­maður ný­sköp­un­ar hjá Ari­on banka, segist í tilkynningu ánægður með hvernig Startup Reykjavík hefur náð að festa sig í sett og eflt nýsköpunar­umhverfið á Íslandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár