Íslensk nýsköpun ferjuð milli landa

Nýverið fengu sex íslensk fyrirtæki stóra styrki frá Evrópu­sambandinu en það sem færri vita er að þau fengu öll hjálp frá aðilum sem sérhæfa sig í að undirbúa styrk­umsóknir.

Miklir peningar eru í svokölluðum „styrkja­bransa“ en nýverið voru sex íslensk fyrirtæki meðal styrkþega Evrópu­sambandsins. Ísland tekur þátt í fjölmörgum samkeppnis­sjóðum Evrópu­sambandsins á grund­velli EES-samstarfsins – samningsins um Evrópska efnahags­svæðið.

Öll þessi fyrirtæki notuðust við þjónustu Evris, íslensks fyrir­tækis sem sérhæfir sig í að hjálpa öðrum fyrir­tækjum að sækja um erlenda styrki með það að markmiði að koma vöru þeirra á erlenda markaði.

Þurfa að standast strangar kröfur

Evrópu­sambandið tilkynnti fyrr á árinu að ákveðið hefði verið að styrkja nýsköpunar­starfsemi 257 lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja í 31 landi. Tilgangurinn er að hjálpa fyrir­tækjunum að koma afrakstri nýsköpunar­verkefna þeirra fyrr á markað en ella. Rannsókna- og nýsköpunar­sjóðurinn Horizon 2020 styrkir þau fyrirtæki sem höfðu bestu áætlanirnar til að klára ýmiss konar verkefni. Alls bárust 2009 umsóknir fyrir þennan fyrsta umsóknar­frest ársins 2018 en Evrópu­sambandið veitir samskonar styrki nokkrum sinnum á ári.

„Nýsköpunar­fyrirtæki, sem ættu ef til vill erfitt með að þrífast í 350.000 manna umhverfi Íslands, komast beint á 500 milljóna alþjóða­markað, með öllum þeim tækifærum sem því fylgir, í gegnum EES. Og þau þurfa að standast mjög strangar kröfur til að fá að auki styrki frá Evrópu­sambandinu. Það væri athyglis­vert að sjá úttekt á því, hversu mjög nýsköpunar-, rannsókna- og vísinda­starf allt á Íslandi hefur tekið framförum á þessum 25 árum, sem bein afleiðing af þátttöku í samkeppnis­sjóðum ESB,“ segir Michael Mann, sendi­herra Evrópu­sambandsins á Íslandi.

Fimmtungur umsókna skilar árangri

Í tilkynningu frá Evrópu­sambandinu segir að ekkert land standi sig betur í að fá SME-styrki úr sjóðum Evrópu­sambandsins en Ísland, því fimmtungur umsókna íslenskra aðila skilar árangri. Næstu lönd á eftir eru með 13 prósent árangurs­hlutfall, og allt niður í 1 prósent.

Á fyrsta stigi styrkja fyrir smá og með­al­stór fyr­ir­tæki eru veittar 50.000 evrur til hvers fyr­ir­tækis.

Á fyrsta stigi styrkja fyrir smá og meðalstór fyrirtæki eru veittar 50.000 evrur til hvers fyrir­tækis, sem eru tæplega 6,1 milljón krónur, til að búa til viðskipta­áætlun. Þau munu einnig fá aðgang að sérstakri þjálfun og aðstoð til að flýta fyrir viðskiptum, en þetta er þjónusta Evrópska nýsköpunar­ráðsins, sem hefur nýlega verið sett á laggirnar. Einnig verður fyrir­tækjunum gefið færi á að sækja alþjóðlegar viðskipta­kaupstefnur utan Evrópu. Á öðru stigi fá fyrirtæki allt að 2.5 milljónir evra til vöru­þróunar og undir­búnings alþjóðlegrar markaðs­setningar. En samkeppnin er gífurlega mikil og aðeins um 5 prósent umsókna á seinna stiginu hljóta brautar­gengi.

Brú íslenskra fyrirtækja til útlanda

Evris er, ef svo má segja, brú íslenskra fyrir­tækja í nýsköpun til útlanda. „Við útvegum fjármagn og þekkingu til að hjálpa fyrir­tækjum að fá styrki og þekkingu til vöru­þróunar og undir­búnings alþjóðlegrar markaðs­setningar,” segir Anna Margrét Guðjóns­dóttir, framkvæmda­stjóri Evris.

Á öðrum enda brúarinnar er Evris og á hinum er stór hópur sérfræðinga sem vinnur erlendis. Anna Margrét segir að hingað til hafi þau einblínt á Evrópu­styrki en nú sé einnig farið að bjóða upp á samskonar þjónustu við fyrirtæki sem vilja þróa vöru sína fyrir Bandaríkja­markað og sækja um þróunar­styrki í Banda­ríkjunum. Sömuleiðis geti Evris haft milli­göngu um að opna nýja markaði og útvega erlenda fjár­mögnun.

Mikil þekking býr að baki

Hjá Evris eru tveir starfs­menn stað­settir hér á landi en fyrir­tækið opnaði nýverið útibú í Danmörku. Það starfar í samvinnu við fyrir­tækið Inspiralia sem er með aðsetur á Spáni og í Banda­ríkjunum og hefur fleiri en 150 sérfræðinga á sínum snærum. Þar vinnur fólk sem er vant alþjóð­legum viðskiptum, hefur ýmiss konar menntun og hjálpar m.a. til við umsóknar­ferli. Þessir aðilar búa yfir mikilli þekkingu á slíkum ferlum og hjálpast að við að tengja smá íslensk fyrirtæki við umheiminn, að sögn Önnu Margrétar.

Athygli hefur vakið hversu margar umsóknir hafa komið frá eins fámennu landi og Ísland er. Anna Margrét segir að þau leiti að góðum fyrir­tækjum með einstaka nýsköpun hér á landi og að hópur fagfólks hjálpi síðan til við að greiða götu þessara litlu fyrir­tækja til þess að þau komist í samband við réttu tengi­liðina.

Margfeldisáhrifin gríðarleg

Anna Margrét segir að þegar fyrirtæki fær stóran styrk þá deilist hann iðulega niður á nokkra aðila. Þeir sem fá styrk velji önnur fyrirtæki til að vinna með sér og oftast séu þau sömuleiðis íslensk. „Þannig eru margfeldis­áhrifin af einum styrk mjög mikil,“ segir hún. Miklir fjármunir komi þannig inn í landið og – það sem mikil­vægara er – þá flyst þekking milli landa.

Það er feg­urðin í þessu, sú mikla þekk­ing sem íslensk fyr­ir­tæki í nýsköpun fá þegar þau vinna með þessum erlendu sér­fræð­ingum.

Anna Margrét er ekki óvön umsóknar­ferlum en hún skrifaði meistara­ritgerð í opinberri stjórn­sýslu um það hvernig þekking er flutt á milli svæða. Hún vann í Brussel í nokkur ár en þar segist hún hafa lært á sjóða­kerfi en sjálf skrifaði hún nokkrar umsóknir. Hún sé þó hætt að skrifa umsóknirnar sjálf, enda þurfi mikla sérfræði­þekkingu til að gera það. Anna Margrét segir að gríðarleg vinna liggi þar að baki.

Þrír og jafnvel fjórir sérfræðingar taka að sér að skrifa slíkar umsóknir og eru þeir oft með mjög sértæka menntun á borð við verkfræði, lífvísindi, sjávar­líffræði, forritun, umhverfis­fræði og alþjóða­viðskipti. „Það er fegurðin í þessu, sú mikla þekking sem íslensk fyrirtæki í nýsköpun fá þegar þau vinna með þessum erlendu sérfræðingum. Umsókn, sem slík, er ekki markmiðið heldur að greiða leið íslenskrar þekkingar á alþjóð­lega markaði,“ segir Anna Margrét.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár