Sex íslensk fyrirtæki fá styrki frá Evrópusambandinu

Nýsköpun sex íslenskra fyrir­tækja fær styrki úr sjóðum ESB á grund­velli EES-samningsins.

Evrópu­sambandið tilkynnti fyrr í dag að ákveðið hafi verið að styrkja nýsköpunar­starfsemi 257 lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja í 31 landi. Sex íslensk fyrirtæki eru meðal styrkþega, en Ísland tekur þátt í fjölmörgum samkeppnis­sjóðum Evrópu­sambandsins á grund­velli EES-samstarfsins – Samningsins um Evrópska efnahags­svæðið.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Evrópu­sambandinu.

Í henni kemur jafnframt fram að tilgangurinn sé að hjálpa fyrir­tækjunum til að koma afrakstri nýsköpunar­verkefna þeirra fyrr á markað en ella.

Rannsókna- og nýsköpunar­sjóðurinn Horizon 2020 styrkir þau fyrirtæki sem höfðu bestu áætlanirnar til að klára ýmiss konar nýsköpunar­verkefni. Alls bárust 2009 umsóknir, samkvæmt tilkynningunni.

„Þetta er enn eitt dæmið um þann gífurlega ávinning sem Ísland hefur af EES-samstarfinu. Íslendingar slá á sumum sviðum öll met og fá tvöfalt meira fé til baka úr sameiginlegum sjóðum Evrópu­sambandsins miðað við hvað þeir leggja inn í þá. En þetta er bara hálf sagan. EES-samstarfið hefur gert íslenskum frumkvöðlum – úr atvinnu­lífinu og í mennta­kerfinu – kleift að vera í samstarfi og samkeppni við kollega sína út um alla Evrópu og víðar.

Nýsköpunar­fyrirtæki, sem ættu ef til vill erfitt með að þrífast í 350.000 manna umhverfi Íslands, komast beint á 500 milljóna alþjóða­markað, með öllum þeim tækifærum sem því fylgir, í gegnum EES. Og þau þurfa að standast mjög strangar kröfur til að fá að auki styrki frá Evrópu­sambandinu. Það væri athyglis­vert að sjá úttekt á því, hversu mjög nýsköpunar-, rannsókna- og vísinda­starf allt á Íslandi hefur tekið framförum á þessum 25 árum, sem bein afleiðing af þátttöku í samkeppnis­sjóðum ESB,“ segir Michael Mann, sendi­herra Evrópu­sambandsins á Íslandi.

Fimmtungur íslenskra umsókna skilar árangri

Enn fremur segir í tilkynningunni að ekkert land standi sig betur í að fá SME-styrki úr sjóðum Evrópu­sambandsins en Ísland, því fimmtungur umsókna íslenskra aðila skilar árangri. Næstu lönd á eftir eru með 13 prósent árangurs­hlutfall, og allt niður í 1 prósent.

Íslensku fyrir­tækin eru:

  • Þula á Akureyri • Curio í Hafnar­firði 
  • ICECAL í Mosfellsbæ
  • SAReye í Mosfellsbæ
  • Activity Stream í Reykjavík
  • Skynjar Technologies í Reykjavík

Nokkur verkefni af þeim 257 sem styrkt eru að þessu sinni:

  • Götuljós knúin sólar­rafhlöðum
  • Hugbúnaður sem auðveldar eftirlit með framleiðslu­ferli iðnfyrirtækja
  • Ný tækni til að greina kæfisvefn
  • Nýtt farand­greiðslu­kerfi, líkt og posar
  • Pökkunarvél sem nýtir umhverfis­vænt efni í umbúðir

Á þessu fyrsta stigi SME-styrkja fyrir smá og meðalstór fyrirtæki eru veittar 50.000 evrur til hvers fyrir­tækis, sem eru tæplega 6,1 milljón krónur, til að búa til viðskipta­áætlun. Þau munu fá aðgang að sérstakri þjálfun og aðstoð til að flýta fyrir viðskiptum, en þetta er þjónusta Evrópska nýsköpunar­ráðsins, sem hefur nýlega verið sett á laggirnar. Einnig verður fyrir­tækjunum veitt færi til að sækja alþjóðlegar viðskipta­kaupstefnur utan Evrópu.

Á Íslandi er það Rannís sem hefur umsjón með samstarfs­áætlunum ESB og á stóran þátt í árangri Íslands, segir í tilkynningu ESB. „Flest íslensku fyrir­tækjanna hafa til að mynda áður fengið styrki úr Tækni­þróunar­sjóði Rannís og má segja að grunnurinn hafi þar verið lagður að árangri hjá sjóðum ESB. Með styrk­veitingunni í dag eru SME-styrkir til íslenskra fyrir­tækja komnir vel yfir milljarð króna, sem þó er bara brot af þeim Evrópu­sambands­styrkjum sem íslenskir aðilar hafa fengið í heildina. Fulltrúi Rannís situr í stjórnar­nefnd SME-styrkjanna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár