Vöxtur alþjóðageirans of hægur

Efnahags­umsvif fyrir­tækja á Íslandi sem starfa á alþjóð­legum mörkuðuim hefur ekki aukist nægilega hratt á síðustu árum, að mati Viðskipta­ráðs.

Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs.
Ari Fenger, for­maður Við­skipta­ráðs. Mynd: Skjáskot/Viðskiptaráð

Alþjóða­geirinn, sem inni­heldur fyrirtæki sem starfa á alþjóð­legum mörkuðum, hefur einungis vaxið um tæplega 3 prósent hérlendis á hverju ári, þrátt fyrir að ráðist hafi verið í ýmsar aðgerðir til að bæta hann á síðustu árum. Þetta kemur fram í erindi Viðskipta­ráðs á Viðskipta­þingi sem haldið var fyrr í dag.

Samkvæmt Viðskipta­ráði standa helstu atvinnu­greinar auðlinda­geirans, sem inni­heldur meðal annars ferða­þjónustu, sjávar­útveg og álframleiðslu, frammi fyrir vaxtar­skorðum í fram­tíðinni. Því telur ráðið nauðsynlegt að efla vöxt alþjóða­geirans, þar sem engin takmörk séu á verðmætum sem skapa megi þar.

Hingað til hafi vöxtur alþjóða­geirans þó verið undir markmiðum, sé miðað við markmið ráðgjafa­fyrir­tækisins McKinsey um 10 prósenta árlegan vöxt. Tryggja þarf gott rekstrar­umhverfi fyrir­tækja í geiranum, auk þess sem fjölga þarf sérhæfðu starfs­fólki og auka ætti skilvirkni fjár­mögnunar­umhverfisins til að ná þessum markmiðum, að mati Viðskipta­ráðs. Upptöku af fundinum má sjá hér að neðan.

Viðskiptaráð segir að bæta megi rekstrar­umhverfi fyrir­tækjanna meðal annars með auknum fyrirsjáanleika í hagstjórn og stöðugu gengi íslensku krónunnar. Einnig er því haldið fram að nýlegar launa­hækkanir hafi verið of miklar og að tryggja þurfi að þær séu í takt við framleiðni­vöxt.

Í erindinu kemur einnig fram að fyrirtæki þurfi að hafa greitt aðgengi að sérhæfðu starfs­fólki hverju sinni. Hins vegar er erfitt fyrir Ísland að geta sinnt slíkri eftir­spurn sökum fámennis og því þurfi að auðvelda fyrir­tækjum til að laða til sín erlenda sérfræðinga. Hér stingur Viðskiptaráð upp á að styrkja alþjóðlegt nám og skattaívilnanir fyrir sérhæfða innflytjendur.

Til viðbótar við stöðugt rekstrar­umhverfi og fjölgun sérfræðinga segir Viðskiptaráð að greiða ætti fyrir fjár­mögnun sprota­fyrirtækja hér á landi. Það mætti til dæmis gera með því að liðka fyrir afleiðu­viðskiptum með gjaldeyri og skortsölu lífeyris­sjóða, en samkvæmt ráðinu myndu þessar tvær aðgerðir koma landinu upp um flokk í alþjóð­legu MSCI vísi­tölunni og laða að sér fjölda erlendra fjárfesta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár