Á 91 milljóna króna kröfu á Pressuna og hefur stefnt henni fyrir dóm

Félag sem á tugmilljóna króna kröfu á fjölmiðla­fyrirtækið Pressuna hefur stefnt því fyrir dómstóla. Krafan á rætur sínar að rekja til seljenda­láns sem veitt var til að kaupa DV árið 2014. Málið verður tekið fyrir í september.

Pressan fékk seljendalán þegar hún keypti DV árið 2014. Það lán hefur ekki verið greitt.
Pressan fékk selj­enda­lán þegar hún keypti DV árið 2014. Það lán hefur ekki verið greitt. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Félagið Útvörður ehf., sem er í eigu Þorsteins Guðna­sonar, hefur stefnt Pressunni ehf., sem rekur meðal annars fjöl­miðlanna DV, DV.is, Eyjuna, Bleikt.is og Pressuna. Málið verður tekið fyrir í héraðs­dómi Reykja­víkur 6. september næst­komandi. Þorsteinn vildi ekki tjá sig um málið þegar Kjarninn leitaði eftir upplýsingum um það en í ársreikningi Útvarðar sést að Pressan skuldaði Útverði 91 milljón króna í lok árs 2015.

Krafan er eina verðmæta eign Útvarðar. Hún á rætur sínar að rekja til þess að félagið veitti Pressunni seljendalán til að kaupa DV og DV.is á árinu 2014. Miðað við umfang kröfunnar hefur lítið eða ekkert verið greitt af henni síðan að til hennar var stofnað.

Í Stundinni sem kom út í dag kemur fram að Pressan skuldi auk þess Toll­stjóra um 300 milljónir króna vegna vangoldinna opinberra gjalda. Gjaldþrota­beiðni hafi verið send inn í vor á hendur DV ehf., einu þeirra félaga sem tilheyra Pressu­samstæðunni, og að sú beiðni verði brátt tekin fyrir í Héraðs­dómi Reykja­víkur.

Veittu seljendalán

Haustið 2014 áttu sér stað mikil átök um yfir­ráð yfir DV. ­Feðgarnir Reynir Trausta­son og Jón Trausti Reyn­is­son, ásamt sam­starfs­mönn­um sín­um, höfðu þá átt og stýrt DV um nokk­urt skeið en fengið fjár­hags­lega ­fyr­ir­greiðslu víða til að standa undir þeim rekstri, meðal ann­ars hjá Gísla Guð­munds­syni, fyrrum eig­anda B&L. Þeim kröfum var síðan breytt í hluta­fé ­sem dugði til að taka yfir DV. Í átök­unum kom maður að nafni Þor­steinn Guðna­son fram fyrir hönd þeirra krafna.

Ólafur M. Magn­ús­son, fyrr­verandi stjórn­ar­maður í DV, sagði í sam­tali við Kjarn­ann í októ­ber 2014 að menn tengdir Fram­sókn­ar­flokknum hefðu viljað kaupa DV í þessum átökum. Þáverandi fram­kvæmda­stjóri flokks­ins hafn­aði því í kjöl­farið í yfir­lýs­ingu.

DV var skömmu síðar selt til hóps undir for­yst­u ­Björns Inga Hrafns­son­ar. Kaupin voru gerð í nafni félags sem heitir Pressan ehf. Kaup­verðið var ekki gert opin­bert en Björn Ingi, sem er aðal­eigandi Pressunnar og helsti stjórn­andi fjölmiðla­samsteypu félagsins, greindi frá því að stór hluti þess hefði verið fjár­magnað með láni frá seljendum hlutarins.

Kröfur Útvarðar á hendur Pressunni eru tilkomnar vegna þess seljenda­láns. Í ársreikningi félagsins segir að undir­liggjandi hlutabréf séu til tryggingar endur­greiðslu. Það þýðir að Útvörður á veð í hluta­bréfum Pressunnar.

Kjarninn greindi frá því í maí að skuldir Pressu­samstæðunnar séu yfir 700 milljónir króna og að mat fjárfesta sem ætluðu að koma að henni, en hættu svo við, væri að það sé upphæðin sem þyrfti að leggja henni til svo að hún yrði rekstrarhæf.

Tollstjóri farið fram á gjaldþrotaskipti

Í Stundinni sem kom út í dag kemur fram að skuldir Pressu­samstæðunnar við Toll­stjóra séu um 300 milljónir króna vegna vangoldinna opinberra gjalda.

Í blaðinu kemur fram að þar fyrir utan séu skuldir við lífeyris­sjóði sem nemi um hundrað milljónum króna. Ekki sé verið að þjónusta þessar skuld­bindingar.

Stundin greinir einnig frá því að Toll­stjóri hafi sent inn gjaldþrota­beiðni á hendur DV ehf. í vor. Sú beiðni hafi ekki verið aftur­kölluð og verður brátt tekin fyrir í Héraðs­dómi Reykja­víkur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár