Vantar um 700 milljónir inn í Pressuna

Endur­skipulagning Pressu­samstæðunnar er í uppnámi eftir að fjárhags­staða hennar reyndist mun verri en upphaf­lega var áætlað. Stefnt er að því að halda starfseminni áfram en hluti þeirra sem kynntir voru sem hluthafar vilja draga sig út.

Einn þeirra miðla sem tilheyrir Pressusamstæðunni er hið rótgróna blað DV.
Einn þeirra miðla sem til­heyrir Pressu­sam­stæð­unni er hið rót­gróna blað DV. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Viðmælendur Kjarnans sem koma að kaupum nýrra hluthafa á Pressunni og tengdum fjöl­miðlum segja að þær 300 milljónir króna sem tilkynnt hefur verið um að setja ætti inn í samstæðuna dugi ekki til. Gatið sem þurfi að brúa til að gera hana rekstrar­hæfa sé nálægt 700 milljónum króna að þeirra mati.

Innan Pressu­samstæðunnar eru tæplega 30 miðlar sem birta efni á vef, á dagblaða- og tímarita­formi og í sjónvarpi. Þeirra þekktastir eru DV, DV.is, Eyjan, Pressan, sjónvarps­stöðin ÍNN og tímaritin Vikan, Gest­gjafinn, Nýtt líf og Hús og híbýli.

Enn er vilji hjá að minnsta kosti hluta þeirra aðila sem ætluðu að setja fé inn í reksturinn til að fjárfesta í samstæðunni og þegar hafa verið lánaðir umtals­verðir fjármunir inn til að gera upp opinber gjöld og lífeyris­sjóðs­skuldir sem voru í vanskilum, samkvæmt upplýsingum Kjarnans.

Eftir að væntanlegum hluthöfum var hleypt að samstæðunni komu hins vegar í ljós allskyns kröfur sem ekki hafði verið greint frá í aðdrag­anda ætlaðar hlutafjár­aukningar auk þess sem rekstrar­forsendur hluta þeirra miðla sem heyra undir Pressuna hafi verið mun verri en sagt hafi verið. Einn viðmælandinn sagði að það stæði „ekki steinn yfir steini“ í rekstri Pressunnar og annar sagðist halda að hlutafjár­loforð yrðu einfald­lega dregin til baka í ljós mun verri stöðu samstæðunnar en kynnt hefði verið.

Það er til marks um slæma stöðu fyrir­tækisins að þeir stjórnar­menn sem tilkynnt var um að setjast ættu í stjórn Pressunnar fyrir tæpum mánuði síðan hafa enn ekki gert það formlega. Þeir vilji ekki bera neina lagalega ábyrgð á samstæðunni eins og hún er í dag.

Ný stjórn ekki tekin við

Tilkynnt var um það 18. apríl að hlutafé útgáfu­félagsins Pressunnar yrði aukið um 300 milljónir króna. Samhliða átti Björn Ingi Hrafnsson, stofnandi Pressunnar og sá sem leitt hefur yfirtökur hennar á öðrum miðlum undan­farin ár, að stíga til hliðar.

Hann hefur verið bæði stjórnar­formaður og útgefandi Pressu­samstæðunnar fram að þessu auk þess sem hann stýrir sjónvarps­þættinum Eyjunni, sem var um nokkurra ára skeið á Stöð 2 en er nú sýndur á ÍNN. Björn Ingi átti að láta af öllum stjórnunar­störfum fyrir Pressuna samhliða hlutafjár­aukningunni. Hann átti þó áfram stýra sjónvarps­þættinum, en yrði hvorki í stjórn né koma að ritstjórn miðla samstæðunnar lengur.

Ný stjórn var kosin á hluthafa­fundi þennan sama dag, 18. apríl. Samkvæmt tilkynningu yrði Gunnlaugur Árnason stjórnar­formaður. Aðrir sem setj­ast áttu í stjórn eru Þor­varður Gunn­ars­son, fyrrum for­stjóri Deloitte á Íslandi, Sess­elja Vil­hjálms­dóttir fram­kvæmda­stjóri hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins TagPlay og Hall­dór Krist­manns­son yfir­maður Sam­skipta- og mark­aðs­sviðs lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Alvogen. Ekkert þeirra hefur sest formlega í stjórn enn sem komið er.

Félag sem er í eigu Hall­dórs, Róberts Wessman, Árna Harð­ar­son­ar, Hilm­ars Þórs Krist­ins­sonar og Jóhanns G. Jóhanns­son­ar, Fjár­fest­inga­fé­lagið Dal­ur­inn ehf., ætlaði að verða stærsti eigandi Pressunnar og koma inn með 155 millj­ónir króna.

Björn Ingi Hrafns­son og við­skipta­fé­lagi hans, Arnar Ægis­son, tóku líka þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni og sam­kvæmt til­kynn­ing­unni átti félag í þeirra eigu að leggja fram 50 millj­ónir króna. Þeir áttu að eiga 14-16 prósent hlut. Félag Hreins Lofts­son­ar, Karls Stein­ars Ósk­ars­sonar og Matth­í­asar Björns­sonar átti svo líka að eignast hlut í Press­unni, en þeir áttu áður Birting. Karl Steinar átti enn fremur að verða fram­kvæmda­stjóri félags­ins og Matth­ías Björns­son fjár­mála­stjóri þess.

Þarf mun meira en upp var látið

Fljótlega eftir að þessi tilkynning var send út kom í ljós að staða Pressu­samstæðunnar var verri en kynnt hafði verið fyrir væntanlegum hluthöfum. Viðmælendur Kjarnans segja að nýjar kröfur hafi komið í ljós nánast daglega frá þeim tíma­punkti og mikil óráðsía sé í rekstri samstæðunnar. Nýjasta mat geri ráð fyrir að það þurfi að setja nær 700 milljónum króna í reksturinn til að halda honum á floti, en ekki um 300 milljónir króna líkt og kynnt var.

Væntanlegir hluthafar hafa þegar lánað fjármuni inn í Pressuna til að gera upp opinberar skuldir en ekki er búið að greiða allt það hlutafé sem kynnt var í frétta­tilkynningunni 18. apríl. Allskyns varnaglar hafi verið settir inn í samkomu­lagið um hlutafjár­aukninguna og segja viðmælendur Kjarnans að þeir varnaglar hafi að mestu verið brotnir nú þegar skýrari mynd af stöðu rekstursins blasi við. Enn sé þó vilji til þess að halda samstæðunni gangandi og unnið er að því að endur­skipuleggja reksturinn með það að markmiði. Alls óljóst, og raunar ólíklegt, er hvort allir hlut­hafarnir sem tilkynnt var um að tækju þátt muni gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár