Íslenskur fjölmiðlamarkaður gjörbreyttist á einum mánuði

Björn Ingi Hrafns­son er ekki lengur ráð­andi í Pressu­sam­stæð­unni. Útgerð­ar­menn hafa selt fjórð­ung af hlut sínum í Árvakri. Frétta­tím­inn er í rekstr­ar­stöðvun og 365 miðlar verða brotnir upp ef kaup Vodafone á stærstum hluta þeirra ganga í gegn.

Síð­ast­lið­inn mánuð hefur íslenskur fjöl­miðla­mark­aður gengið í gegnum miklar breyt­ingar. Frétta­tím­inn stefnir í gjald­þrot eftir 151 millj­óna króna tap á árinu 2016 og starfs­menn hans hafa ekki mætt til vinnu í tæpar tvær vikur. Eyþór Arnalds keypti rúm­lega fjórð­ungs­hlut í Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, fyrir ótil­greinda upp­hæð af stórum útgerð­ar­fyr­ir­tækjum. Í gær var svo greint frá því að nýir aðilar séu að taka við fjöl­miðla­veldi Björns Inga Hrafns­sonar, sem oft­ast er kennt við Pressuna. Innan þeirrar sam­stæðu eru tæp­lega 30 miðlar sem birta efni á vef, á dag­blaða- og tíma­rita­formi og í sjón­varpi. Þeirra þekkt­astir eru DV, DV.is, Eyjan, Pressan, sjón­varps­stöðin ÍNN og tíma­ritin Vikan, Gest­gjaf­inn, Nýtt líf og Hús og híbýli.

Þegar við bæt­ist að fyrir dyrum er frá­gangur á kaupum Vodafone á nær öllum miðlum 365 utan Frétta­blaðs­ins blasir við að árið 2017 virð­ist ætla að verða ár breyt­inga í íslenskum fjöl­miðlum. Líklega mestu breyt­ingar sem orðið hafa á þeim mark­aði árum saman.

Björn Ingi stígur til hliðar

Tilkynnt var um það í gær að hlutafé útgáfu­fé­lags­ins Pressunnar verði aukið um 300 millj­ónir króna. Samhliða stígur Björn Ingi Hrafns­son, stofn­andi Pressunnar og sá sem leitt hefur skuld­settar yfir­tökur hennar á öðrum miðlum und­an­farin ár, til hliðar.

Hann hefur verið bæði stjórn­ar­for­maður og útgef­andi Pressu­sam­stæð­unnar fram að þessu auk þess sem hann stýrir sjón­varps­þætt­inum Eyjunni, sem var um nokk­urra ára skeið á Stöð 2 en er nú sýndur á ÍNN. Björn Ingi mun láta af öllum stjórn­un­ar­störfum fyrir Pressuna sam­hliða hluta­fjár­aukn­ing­unni. Hann mun þó áfram stýra sjón­varps­þætt­inum. Hann mun því hvorki vera í stjórn né koma að rit­stjórn miðla sam­stæð­unnar lengur.

Ný stjórn var kosin á hlut­hafa­fundi í gær og verður Gunn­laugur Árnason stjórn­ar­for­maður. Aðrir í stjórn verða Þor­varður Gunn­ars­son, Sesselja Vil­hjálms­dóttir og Halldór Krist­manns­son. Halldór, sem er yfir­maður sam­skipta- og mark­aðs­sviðs Alvogen, er sá eini sem situr í stjórn­inni sem er líka eig­andi. Hann er á meðal þeirra sem standa að Fjár­fest­inga­fé­lag­inu Dalurinn, ásamt m.a. Róberti Wessman og Árna Harð­ar­syni. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur til að bæta einum stjórn­ar­manni til við­bótar við, svo odda­tala verði í stjórn­inni.

Núver­andi fram­kvæmda­stjóri Birtings, Karl Steinar Ósk­ars­son verður fram­kvæmda­stjóri Pressu-sam­stæð­unnar og Matthías Björns­son, fjár­mála­stjóri Birtings, mun gegna sama starfi á sam­stæðu­grund­velli. Sigurvin Ólafsson verður fram­kvæmda­stjóri DV, en hann tók við því starfi fyrr á þessu ári.

Umfangsmikil endurskipulagning

Vinna við end­ur­skipu­lagn­ingu á Press­unni og tengdum miðlum hefur staðið yfir mán­uðum saman. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er ekki ein­ungis um hluta­fjár­aukn­ingu að ræða. Samhliða var einnig tekið umtals­vert til í skuldum sam­stæð­unnar, og fer hluti hluta­fjár­aukn­ing­ar­innar í að gera slíkar upp. Skuldir Pressunnar hafa verið tölu­vert til umræðu á und­an­förnum árum. Í jan­úar greindi Kjarninn frá því að skuldir sam­stæð­unnar hefðu sexfald­ast frá árs­lokum 2013 og til loka árs 2015. Þá stóðu þær í 444 millj­ónum króna. Augljóst var að hluti skuld­anna var vegna þess að fjöl­miðlar voru teknir inn í sam­stæð­una gegn selj­enda­lánum. Þ.e. þeir sem áttu fjöl­miðl­anna áður lán­uðu Press­unni fyrir kaup­verð­inu. Þannig var málum til að mynda háttað þegar DV var keypt seint á árinu 2014.

Ljóst var þó að allar þær skuldir sem söfn­uð­ust saman innan Pressu­sam­stæð­unnar voru ekki af þeim toga. Einnig þurfti að fjár­magna rekstur og umbreyt­inga­kostnað í sam­stæðu sem var sífellt að bæta við sig fleiri fjöl­miðlum. Þeir eru nú orðnir tæp­lega 30 tals­ins, þegar öll lands­byggð­ar­blöðin og tíma­ritin sem fylgja Birtingi eru talin með. Aldrei var upp­ljóstrað um hverjir það hefðu verið sem hefðu lánað annað hvort stærstu eig­end­urm Pressu­sam­stæð­unnar –Birni Inga Hrafn­syni og Arnari Ægissyni – eða sam­stæð­unni sjálfri það fé sem kom inn í hana. Þeir vildu sjálfir ekki upp­lýsa um það og Fjöl­miðla­nefnd taldi sig ekki hafa heim­ild í lögum til að kalla eftir upp­lýs­ingum um lán­veit­endur.

Kvika framseldi skuld sína

Ein skuld vakti meiri athygli en önnur. Það var yfir­dráttur sem Pressan var með hjá MP banka, sem í dag heitir Kvika. Hann var upp á rúm­lega 60 millj­ónir króna í lok árs 2013. Ástæða þess að sú skuld vakti athygli var sú að tvær systur, Malín Brand og Hlín Ein­ars­dóttir, reyndu að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, snemma sum­ars 2015. Í fjár­kúg­un­ar­bréfi sem þær sendu hót­uðu þær að gera opin­ber­ar ­upp­lýs­ingar sem áttu að koma ráð­herr­anum illa. Þær snér­ust um að Sig­mundur Davíð eða aðilar tengdir honum hafi haft aðkomu að því að Pressan ehf. hafi fengið lána­fyr­ir­greiðslu hjá MP banka þegar félagið keypti DV. Sig­mundur Davíð hefur hafnað því að hann hafi fjár­hags­leg tengsl við Björn Inga Hrafns­son og að hann hafi komið að kaupum á DV á nokkurn hátt. Björn Ingi sagði sömu­leiðis að for­sæt­is­ráð­herra hafi ekki fjár­magnað kaup Pressunnar á DV og að hann eigi ekki hlut í blað­inu. Bankinn vildi sjálfur ekki tjá sig um málið efn­is­lega þar sem hann taldi sig ekki geta rofið trúnað við við­skipta­vini sína.

Kvika framseldi skuldabréf á Pressusamstæðuna til þeirra sem standa að FÓ eignarhaldi ehf. sem hluta af öðru viðskiptauppgjöri. Sigurður Atli Jónsson er forstjóri Kviku. Mynd: Kvika
Kvika fram­seldi skulda­bréf á Pressu­sam­stæð­una til þeirra sem standa að FÓ eign­ar­haldi ehf. sem hluta af öðru við­skipta­upp­gjöri. Sigurður Atli Jónsson er for­stjóri Kviku. Mynd: Kvika

Einn nýrra eig­enda Pressunnar er félagið FÓ eign­ar­hald ehf. Á meðal þeirra eig­enda þess er Fannar Ólafsson. Hann segir í sam­tali við Kjarnann að aðkomu FÓ megi rekja til þess að félagið hafi fengið skulda­bréf á Pressu­sam­stæð­una fram­selt frá Kviku banka sem hluta af öðru við­skipta­upp­gjöri. Það sé hans aðkoma að mál­inu. Hann sé að reyna að fá umrætt skulda­bréf greitt.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Kviku um fram­sal á kröfu bank­ans á Pressu­sam­stæð­una. Í svari frá Kviku við fyr­ir­spurn Kjarnans segir að bank­inn ekki geta tjáð sig um málið. Hann sagð­ist auk þess ekki geta tjáð sig um hvort Kvika hefði afskrifað ein­hverjar skuldir Pressunnar.

Félag Róberts og Árna verður stærsti hluthafinn

Sá aðili sem kemur með mest fé inn í rekst­ur­inn er Fjár­fest­inga­fé­lagið Dalurinn., félag í eigu Róberts Wessman, Árna Harð­ar­sonar og þriggja ann­arra manna. Róbert og Árni hafa verið við­skipta­fé­lagar árum saman og eru burð­ar­rás­irnar í Alvogen í dag. Áður störf­uðu þeir m.a. hjá Actavis. Báðir eru sterk­efn­aðir. Árni var til að mynda skatta­kongur Íslands árið 2016, þegar hann greiddi sam­tals 265,3 millj­ónir króna í opin­ber gjöld. Árni var líka áber­andi í kringum hóp­mál­sókn fyrr­ver­andi hlut­hafa Lands­banka Íslands gegn Björgólfii Thor Björg­ólfs­syni sem þing­fest var í októ­ber 2015. Félag í eigu Árna átti um 60 pró­sent af hluta­bréf­unum sem stóðu á bak­við mál­sókn­ina en hann hafði keypt þau fyrir 25-30 millj­ónir krona af íslenskum líf­eyr­is­sjóðum vik­una áður en mál­sóknin var þing­fest. Auk þess greiddi Árni sinn hluta máls­kostn­aðar. Málið var ein­ungis einn af mörgum öngum langvar­andi deilna og orða­skaks milli Árna og Róberts ann­ars vegar og Björg­ólfs Thors hins vegar. Deilna sem hófust að alvöru þegar Björgólfur Thor rak Róbert úr stóli for­stjóra Actavis.

Róbert Wessman er einn þeirra sem standa að félaginu sem verður stærsti einstaki eigandi Pressusamstæðunnar.
Róbert Wessman er einn þeirra sem standa að félag­inu sem verður stærsti ein­staki eig­andi Pressu­sam­stæð­unnar.

Alls setja Árni, Róbert og félagar þeirra 155 millj­ónir króna inn í rekstur Pressunnar og verða stærstu hlut­hafar fyr­ir­tæk­is­ins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Róbert Wessman kemur að sam­stæð­unni. Hann tók þátt að fjár­magna Vef­press­una, upp­haf­legt móð­ur­fyr­ir­tæki vef­mið­ils­ins Pressunnar, þegar það félag var stofnað 2009. Samkvæmt árs­reikn­ingi þess árs átti Salt Invest­ments, félag Róberts, 23,08 pró­sent hlut í Vef­press­unni í lok þess árs. Auk þess var starf­semi hennar til húsa á skrif­stofum Salts framan af.

Eigendur Eyktar og Subway bætast í hópinn

Næst hæsta upp­hæðin kemur frá Kringlu­turn­inum ehf., félagi í eigu Björns Inga og Arnars Ægis­sonar. Þeir setja um 50 millj­ónir króna af nýju hlutafé inn í rekst­ur­inn en það skilar þeim þó ekki nema um 14-16 pró­sent eign­ar­hlut, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans. Auk þess eiga þeir kaup­rétt á meiru hlutafé, sem ekki hefur verið gefið upp hver er. Björn Ingi og Arnar áttu um 82 pró­sent hlut í Press­unni í upp­hafi árs.

Þriðji stóri hlut­haf­inn í hópnum eru fyrr­ver­andi eig­endur Birtings. Greint var frá því í lok nóv­em­ber 2016 að Pressan hefði keypt Birting, stærstu tíma­rita­út­gáfu lands­ins. Síðar kom í ljós að ekki var um klippt og skorin kaup að ræða. Í febr­úar síð­ast­lið­inn var til­kynnt um að Pressan hefði eign­ast allt hlutafé í Birtingi en að fyrr­ver­andi eig­endur Birtings myndu koma inn í hlut­hafa­hóp Pressunnar. Þessi hópur leggur nú til 47 millj­ónir króna af nýju hlutafé til Pressu­sam­stæð­unnar.

Aðrir sem taka þátt í hluta­fjár­aukn­ing­unni leggja minna fé til. Mest leggur félagið FÓ eign­ar­hald – eigu Fannars Ólafs­sonar, Andra Gunn­ars­sonar og Gests Breið­fjörð Gests­sonar – til, eða 20 millj­ónir króna. Þar á eftir kemur verk­tak­aris­inn Eykt ehf., í eigu Péturs Guð­munds­sonar, með 15 millj­óna króna fram­lag. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans stendur til að flytja starf­semi allra Pressu­miðl­anna í hús­næði í Borg­ar­túni sem Eykt er að byggja um kom­andi ára­mót. Skúli Gunnar Sig­fús­son, oft­ast kenndur við Subway, leggur til tíu millj­ónir króna og Sigurvin Ólafsson, lög­maður og fram­kvæmda­stjóri DV, leggur tvær millj­ónir króna í púkkið. Viggó Einar Hilm­ars­son leggur svo fram eina milljón króna.

Eyþór kemur inn í eigendahóp Árvakurs

Á mánu­dag var upp­lýs­ingum um eign­ar­hald á Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins og Mbl.is, breytt á heima­síðu Fjöl­miðla­nefndar. Félagið Ramses II, í eigu Eyþórs Arnalds, er nú skrað með 26,62 pró­sent eign­ar­hlut og er stærsti ein­staki eig­andi Þórs­merkur ehf., eig­anda Árvakurs. Engar upp­lýs­ingar hafa verið gefnar um kaup­verð á hlutnum, en Eyþór keypti hann af Samherja, Vísi og Síld­ar­vinnsl­unni.

Eyþór er þar með orð­inn stærsti ein­staki eig­andi Árvakurs. Félög tengd Ísfélagi Vest­manna­eyja eru hins vegar enn með sam­an­lagt stærstan eign­ar­hlut. Ísfé­lagið á sjálft 13,43 pró­sent hlut og félagið Hlynur A, í eigu Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur, aðal­eig­anda Ísfé­lags­ins, á 16,38 pró­sent hlut. Auk þess á félagið Legalis 12,37 pró­sent hlut. Eigendur þess eru m.a. Sig­ur­björn Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Árvakurs og stjórn­ar­maður í Ísfé­lag­inu, og Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son, stjórn­ar­for­maður Ísfé­lags­ins. Sam­an­lagður hlutur þess­arar blokkar í Árvakri er 42,18 pró­sent. Gunn­laugur Sævar er einnig eig­andi að hlut í Lýsi ehf., sem á 1,97 pró­sent hlut í Árvakri. Bæði Gunn­laugur Sævar og Sig­ur­björn sitja í stjórn þess fyr­ir­tækis.

Undanfarin misseri hefur Morgunblaðið verið nær einvörðungu í eigu aðila í sjávarútvegi. Nú verður breyting á. Eyþór Arnalds hefur eignast rúman fjórðung í Árvakri, útgáfufélagi blaðsins. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Und­an­farin miss­eri hefur Morg­un­blaðið verið nær ein­vörð­ungu í eigu aðila í sjáv­ar­út­vegi. Nú verður breyt­ing á. Eyþór Arnalds hefur eign­ast rúman fjórð­ung í Árvakri, útgáfu­fé­lagi blaðs­ins. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Aðrir eig­endur eru að mestu aðilar tengdir íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Á meðal Þeirra eru Kaup­fé­lag Skag­firð­inga, Rammi hf. og Skinney-Þinganes.

Kaup félags Eyþórs á hlut í Þórsmörk eru háð þeim fyr­ir­vara að aðrir eig­endur nýti sér ekki for­kaups­rétt.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er hluta­fjár­aukn­ing í Árvakri fram undan og er aðkoma Eyþórs að félag­inu tengd henni. Árvakur tap­aði 1,5 millj­arði króna frá því að nýir eig­endur tóku við félag­inu 2009 og fram til loka árs 2015. Á þeim tíma hafa þeir eig­endur sett að minnsta kosti 1,2 millj­arða króna í rekstur félags­ins og voru 4,5 millj­arðar króna afskrif­aði hjá Íslands­banka í því ferli þegar nýir eig­endur komu að félag­inu. Tap Árvak­urs var 164 millj­ónir króna á árinu 2015.

Árs­reikn­ingur fyrir árið 2016 hefur ekki verið birtur en Har­aldur Johann­es­sen, fram­kvæmda­stjóri Árvak­urs og rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, sagði í til­kynn­ingu í fyrra­haust að líkur væru á halla­rekstri á árinu 2016 líka. Sam­kvæmt til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skráar var hlutafé Árvak­urs aukið um 7,4 pró­sent í nóv­em­ber í fyrra og hækk­unin öll greidd með pen­ing­um.

Tífalt tap og reksturinn stöðvaður

Frí­blaðið Frétta­tím­inn kom síð­ast út föstu­dag­inn 7. apríl. Ekki hefur form­lega verið til­kynnt um hver afdrif þess verða en starfs­menn blaðs­ins hafa ekki verið boð­aðir til vinnu síðan að gerð þess tölu­blaðs lauk. Hluti starfs­manna, um tugur, hefur enn ekki fengið greidd laun sem áttu að greið­ast um síð­ustu mán­aða­mót.

Frétta­blaðið greindi frá því fyrir skemmstu að tap Frétta­tím­ans, sam­kvæmt rekstr­ar­reikn­ingi, hefði verið 151 milljón króna á árinu 2016. Tapið tífald­að­ist á milli ára.

Gunnar Smári Egilsson, sem leiddi hóp sem keypti útgáfu­fé­lag Frétta­tím­ans síðla árs 2015, hætti afskiptum af útgáf­unni í byrjun apríl. Í stöðu­upp­færslu á Facebook sagði hann það hafa verið gert á „meðan lán­ar­drottn­ar, aðrir hlut­haf­ar, starfs­fólk og mögu­legir kaup­endur leit­uðu nýrra lausna.“

Engar nýjar fréttir hafa borist af afdrifum Frétta­tím­ans á síð­ustu dögum.

Stærsta einkarekna fjölmiðlasamsteypan brotin upp

Stærstu tíð­indin á fjöl­miðla­mark­aði það sem af er þessu mikla breyt­ing­ar­ári urðu þó lík­ast til um miðjan mars síð­ast­lið­inn, þegar til­kynnt var um að Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone á Íslandi, hefði und­ir­ritað samn­ing um kaup á öllum eignum og rekstri 365 miðla, að und­an­skildum eignum er varða útgáfu Frétta­blaðs­ins. Kaup­verðið er 7.725-7.875 millj­ónir króna. Það greið­ist í reiðu­fé, með útgáfu nýrra hluta í Fjar­skiptum og yfir­töku á 4,6 millj­arða króna skuld­um.

Sú breyt­ing var gerð á fyrra sam­komu­lagi að Fjar­skipti eru ekki bara að kaupa ljós­vaka- og fjar­skipta­eignir 365 miðla. Nú bæt­tust bæði frétta­vef­ur­inn Vísir.is og frétta­stofa 365, að und­an­skil­inni rit­stjórn og rekstri Frétta­blaðs­ins, í kaup­in. Áður ætl­aði Fjar­skipti ein­ungis að kaupa sjón­varps- og útvarps­stöðvar 365 auk fjar­skipta­hluta fyr­ir­tæk­is­ins. Helstu sjón­varps­stöðvar eru Stöð 2, Stöð 2 Sport, Stöð 3 og Bíórás­in. Helstu útvarps­stöðvar eru Bylgj­an, FM957 og X-ið.

Frétta­blaðið verður áfram í eigu 365 miðla. Það verður tíma­ritið Glamour einnig. Engar breyt­ingar verða á eign­ar­haldi þess félags. Eft­ir­lits­að­ilar fara nú yfir við­skiptin og er búist við nið­ur­stöðu þeirra síð­sum­ars eða í haust.

Núver­andi hlut­hafar 365 miðla munu eign­­ast 10,9 pró­sent hlut í Fjar­­skipt­um eftir ef greitt verður með nýju hluta­fé, líkt og stefnt er að. Það þýðir að stærsti eig­andi 365 miðla, aflands­­fé­lög í eigu Ing­i­­bjargar S. Pálma­dótt­­ur, munu eign­­ast um átta pró­­sent í Fjar­­skipt­­um. Sam­an­lagt verða félög hennar stærsti ein­staki einka­fjár­­­fest­ir­inn í hlut­hafa­hópi félags­­ins. Í dag er það Ursus, félag Heið­­ars Guð­jóns­­son­­ar, sem á 6,4 pró­­sent hlut. Í krafti þess eign­­ar­hlutar er Heiðar stjórn­­­ar­­for­­maður Fjar­­skipta. Stærstu eig­endur Fjar­­skipta eru þrír stærstu líf­eyr­is­­sjóðir lands­ins: Líf­eyr­is­­sjóður starfs­­manna rík­­is­ins, Líf­eyr­is­­sjóður versl­un­­ar­­manna og Gildi líf­eyr­is­­sjóð­­ur. Sam­an­lagt eiga þeir 32,13 pró­­sent eign­­ar­hlut í félag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár