Fylgi Framsóknar dregst saman um fjögur prósentustig á milli mánaða

Samkvæmt nýjustu könnun Maskínu nartar Samfylkingin nú í hæla Fram­sóknar hvað fylgi á landsvísu varðar. Píratar dala ögn en Viðreisn og Vinstri græn mælast með meira fylgi en í ágúst­mánuði.

Fylgi Framsóknarflokksins hreyfist um fjögur prósent á milli mánaða í nýjustu mælingu Maskínu.
Fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins hreyf­ist um fjögur pró­sent á milli mán­aða í nýj­ustu mæl­ingu Maskínu. Mynd: Bára Huld Beck

Fylgi Framsóknar­flokkurinn dregst saman um heil fjögur prósentu­stig á milli mánaða, samkvæmt nýrri fylgis­könnun Maskínu sem birt er í dag. Flokkurinn mældist með 19,6 prósenta fylgi í mælingu fyrir­tækisins í ágúst, en fylgið mælist nú 15,6 prósent.

Á sama tíma bætir Samfylkingin við sig 2,3 prósentu­stigum frá síðasta mánuði og nartar í hæla Fram­sóknar með 15,2 prósenta fylgi. Fylgi Samfylkingar hefur aukist um rúm fjögur prósentu­stig frá því í júlí, en þá mældist fylgið 10,9 prósent.

Fylgi Sjálfstæðis­flokksins er á svipuðum slóðum og í síðustu mælingu Maskínu, en flokkurinn mælist með 20,8 prósent og er stærsti flokkur landsins sem fyrr.

Píratar en Viðreisn og Vinstri græn vinna á

Píratar mælast með 12,3 prósent fylgi í þessari könnun en mældust með 13,9 prósent í ágúst­mánuði.

Á sama tíma bæta bæði Viðreisn og Vinstri græn við sig fylgi sem nemur rúmu prósentu­stigi á milli mánaða og er fylgi Viðreisnar nú 10,4 prósent, en fylgi Vinstri grænna mælist 8,7 prósent.

Sósíalistar enn stærri en tveir flokkar sem eiga sæti á þingi

Sósíalista­flokkurinn mælist með ögn minna fylgi en í síðasta mánuði, eða 6,8 prósent.

Flokkurinn, sem á engan fulltrúa á þingi, er þannig með meira fylgi en bæði Flokkur fólksins og Miðflokkurinn, þrátt fyrir að báðir flokkar bæti við sig á milli mánaða.

Fylgi Flokks fólksins mælist nú 5 prósent og fylgi Miðflokksins 5,3 prósent.

Könnun þessi var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e.panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Svarendur voru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri. Svör voru vegin samkvæmt mann­fjöldatölum Hagstofunnar, þannig að úrtakið endur­speglar þjóðina prýðilega. Við vigtun svara getur birst örlítið misræmi í fjölda­tölum og hlut­föllum sem orsakast af námundun.

Könnunin fór fram dagana 16. til 27. september 2022 og voru 1.875 svarendur sem tóku afstöðu til flokks.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár