Alibaba kaupir hlut í Snapchat - metið á 2.100 milljarða

Kínverski netrisinn Alibaba hefur keypt hlut í samskipta App fyrir­tækinu Snapchat fyrir um 200 milljónir Bandaríkja­dala, eða sem nemur 28 milljörðum króna, að því er fram kemur á vef Bloomberg. Verðmatið á Snapchat, sem lá til grund­vallar viðskiptunum, nam 15 milljörðum Bandaríkja­dala, eða sem nemur 2.100 milljörðum króna. Alibaba keypti 1,3 prósent hlut í félaginu, en að undan­förnu hefur Alibaba verið að kaupa hluti í fyrir­tækjum sem framleiða samskipta­hugbúnað.

Í lok árs 2013 bauð Facebook í Snapchat, þrjá milljarða Bandaríkja­dala, en því tilboði var neitað. Sú ákvörðun hefur reynst rétt þar sem virði fyrir­tækisins hefur fimm­faldast frá því tíma, og notenda­fjöldinn vex stöðugt.

Meðal hluthafa Snapchat er annar kínverskur risi á netmarkaði, fjár­festinga­sjóðurinn Tencent Holding, en hann á einnig hlut í Plain Vanilla, sem fram­leiðir Quiz Up spurninga­leikinn. Rætur þess fyrir­tækis eru íslenskar, en forstjóri þess og stofnandi er Þorsteinn B. Friðriksson.

Notendur Snapchat eru í nærri 300 milljónum, en virkir notendur eru um 100 milljónir um allan heim. Þar af eru 70 prósent notenda konur, en ríflega 66 prósent notenda Snapchat eru undir 25 ára aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár