Hvað þarf tónlistarmaður margar spilanir á Spotify til að þéna lágmarkslaun?

Hefur þú velt fyrir þér hvað tónlistar­menn fá í sinn hlut fyrir spilanir í helstu tónlistar­veitum og sölu á lögum í helstu stafrænu tónlistar­verslunum nútímans, nú þegar fólk virðist flest vera hætt að kaupa plötur? Hvað þurfa þeir að selja mörg eintök eða fá margar hlustanir til að þéna bandarísk lágmarks­laun?

Ef þeir gefa plötuna sína út á eigin vegum nægir að selja 105 eintök. Ef þeir eru með plötu­samning við útgefanda og selja lögin sín í gegnum helstu stafrænu tónlistar­verslanir netheima á borð við iTunes þá þurfa þeir 11.354 niðurhöl til að ná lágmarks­launum. Þeir tónlistar­menn sem eru á samningi hjá útgáfu, og láta hana hafa góðan hluta af tekjum sínum vegna streymis á tónlist sinni, þurfa að fá yfir eina milljón spilanir á mánuði hjá veitum eins og Deezer og Spotify til að ná bandarískum lágmarks­launum.

Þetta kemur fram í nýrri gagna­skýringu David McCandless sem greint er frá í The Guardian. McCandless gerði sambærilega skýringu árið 2010 sem olli töluverðu uppnám innan tónlistar­geirans.

Gagna­skýringin sem birtist á vef The Guardian.

Gagnaskýringin sem birtist á vef The Guardian.
Gagna­skýr­ingin sem birt­ist á vef The Guardian.

Í skýring­unni sinni fer McCandless yfir tölulegar stað­reyndir ýmissa tónlistar­fyrirtækja og –veita og sýnir út frá gögnum hvað listamenn geta átt von á að fá í sinn hlut vegna spilanna á lögum sínum hjá viðkomandi fyrir­tækjum. Í skýring­unni er farið yfir stöðuna hjá Bandcamp, iTunes, Amazon, sem selja tónlist, og hjá tónlistar­veitunum Spotify, Deezer, Beats Music, Rhapsody, YouTube og Tidal.

Samhliða því að reikna út hvað tónlistar­maður geti átt von á að fá fyrir hverja einstaka spilum þá reiknar McCandless út hversu margar sölur eða mörg streymi hann þarf til að þéna lögbundin lágmarks­laun í Banda­ríkjunum. Þau eru 1.260 dalir á mánuði, eða 173.174 krónur. Tölurnar innihalda ekki höfundar­réttar­greiðslur fyrir að semja lögin en reikna út hver meðatalsgreiðsla þeirra tónlistar­manna sem eru með samninga við útgáfu­fyrirtæki. Spotify segir til að mynda að greiðsla til útgefanda fyrir hvert streymi sé á bilinu 0,006 og 0,0084 dalir, 0,8 til 1,15 krónur. Samkvæmt greiningu McCandless er meðaltals­greiðsla útgefenda til tónlistar­manna einungis brot af þeirri þó lágu upphæð, eða 0,001128 dalir, tæplega 0,16 krónur.

Tekið er fram í grein The Guardian að það að horfa einungis á greiðslu fyrir hverja hverja spilun geti verið misvísandi því það er mikill munur á þvi hversu margir eru að nota hverja veitu eða þjónustu fyrir sig. Beats borgar til að mynda meira á hverja spilun en Spotify en miklu, miklu fleiri nota Spotify en Beats. Því skilar Spotify tónlistar­mönnum meiri tekjur en Beats. Ef notenda­fjöldi Beats eykst gerir viðskipta­módel veitunnar ráð fyrir því að greiðslur á hvert streymi lækki.

Upplýsinga­graf McCandless er því ekki sönnun fyrir því að ein þjónusta sé betri en önnur fyrir tónlistar­mennina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár