Sannir Finnar á leið í ríkisstjórn í Finnlandi

Miðflokkurinn, Sannir Finnar og Þjóðar­bandalagið munu mynda ríkis­stjórn í Finnlandi og hafa hafið stjórnar­myndunar­viðræður. Frá þessu var greint í fjöl­miðlum í dag. Ríkis­stjórnin verður mið-hægri stjórn, en fallið var frá því að reyna að mynda ríkis­stjórn fjögurra stærstu flokkanna. Flokkarnir þrír eru með yfir 61% þingsæta.

Kosningar fóru fram í Finnlandi þann 19. apríl síðastliðinn, en Miðflokkurinn var sigurvegari þeirra kosninga með rúmt 21 prósent og 49 af 200 þingsætum.

Juha Sipilä, verðandi forsætis­ráðherra og leiðtogi Miðflokksins, segir flokkanna hafa náð saman, en ákvörðunin hafi ekki verið auðveld. Nú þurfi að koma efnahags­lífi Finnlands í gang og það þýði meðal annars að taka þurfi erfiðar ákvarðanir.

Sannir Finnar eru popúlískur hægri­flokkur sem hefur viljað takmarka fjölda innflytjenda og er mjög gagn­rýninn á Evrópu­sambandið. Flokkurinn vann stórsigur í kosningunum árið 2011 og fór nálægt því að sexfalda fylgi sitt, en var haldið utan við ríkis­stjórn.

Þjóðar­bandalagið, sem leiddi síðustu ríkis­stjórn, er á öndverðum meiði við Sanna Finna í mörgum málum og því var þessi þriggja flokka stjórn ekki talin sú líklegasta. Flokkarnir eru mjög óssamála til að mynda í Evrópu­sambands­málum. Þjóðar­bandalagið er mið-hægri flokkur og Alexander Stubb, leiðtogi flokksins, var forsætis­ráðherra í síðustu ríkis­stjórn. Flokkurinn tapaði þónokkru fylgi þótt hann sé enn sá næst­stærsti með 18,2 prósent og 37 þingsæti.

Hvernig ætla Sannir Finnar að leysa vandamál vinnumarkaðarins?


Baldvin Þór Bergsson, frétta­rit­ari Kjarnans í Svíþjóð, skrif­aði ítar­lega um mögu­legar stjórn­ar­mynd­und­ar­við­ræður í Finn­landi dag­inn eftir kosn­ingar. Frétta­skýr­ingu hans má lesa hér, en í henni kom meðal ann­ars fram eft­ir­far­andi.

Ef marka má yfir­lýsingar Sannra Finna mætti leysa flest vandamál Finnlands með því að draga úr fjölda innflytjenda. Þeir skilgreina finnska menningu afar þröngt og því er ekki aðeins hugtakið fjöl­menningar­samfélag eitur í þeirra beinum heldur hafa þeir gagnrýnt fjár­framlög til ýmissa list­greina. Jafnframt vilja þeir draga úr fjölda innflytjenda og takmarka möguleika þeirra á vinnu­markaði. Þessi stefna fer hins vegar illa saman við þá staðreynd að finnska þjóðin eldist hratt og því eru í raun aðeins tveir möguleika í stöðunni. Annað hvort þarf að fjölga innflytjendum til þess að halda vinnu­markaðinum uppi, eða gjör­breyta kerfinu þannig að fólk vinni lengur og þyggi því ekki lífeyri fyrr en mun síðar en það gerir í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár