Yfir 1.600 greindust með kórónuveirusmit í gær

Fjöldi þeirra sem eru í einangrun eða sóttkví hefur tvöfaldast á einni viku, 20 liggja á sjúkra­húsi og sex þeirra eru á gjörgæslu. Alls eru 172 starfs­menn Land­spítalans í einangrun.

Í gær, fimmtudaginn 30. desember greindust 1.601 með COVID-19 smit, þar af voru 44 sem greindust sem landamæra­smit. Alls voru 731 í sóttkví. Þetta er langmesti fjöldi sem nokkru sinni hefur greinst með smit hérlendis. Þetta er í fyrsta sinn sem fleiri en þúsund smit greinast á einum degi.

Sem stendur eru 7.585 í einangrun og 6.424 í sóttkví, en ákveðið var í gær að stytta einangrunar­tímann úr tíu dögum í sjö og heimila svokallaða vinnustaða­sóttkví. Samanlagt eru því rúmlega 14 þúsund manns í sóttkví eða einangrun yfir áramótin. Það eru rúmlega tvöfalt fleiri en fyrir viku síðan, en á aðfangadag jóla voru 6.781 í sóttkví eða einangrun.

20 liggja á sjúkra­­húsi með COVID-19 þar af sex á gjör­­gæslu og fimm þeirra eru í önd­un­­ar­­vél. Alls eru 172 starfs­menn Land­spítala í einangrun sem stendur.

Fyrsta til­­­fellið af kór­ón­u­veirunni var stað­­fest hér á landi 28. febr­­úar árið 2020. Síðan þá eru liðnir 22 mán­uðir og frá þeim tíma hafa 27.059 smit greinst.

Ástæða þess að smitum hefur fjölgað skarpt er útbreiðsla ómíkron-af­brigðis veirunnar hér­lend­is.

að afbrigði hefur dreifst á leift­­ur­hraða um ver­öld víða, um nokkuð tak­­marka­­laus sam­­fé­lög manna ólíkt því sem gerð­ist í delta-­­bylgj­unni, höfum við ekki enn fengið stað­­fest­ingu á því hversu skað­­legt það er.

Það sem vís­inda­­menn hafa þó sagt er að jafn­­vel þótt ómíkron valdi almennt mild­­ari sjúk­­dóms­ein­­kennum en delta gæti sú bylgja sem nú rís sligað heil­brigð­is­­kerfi af þeirri ein­­földu ástæðu að þegar gríð­­ar­­lega margir smit­­ast sam­­tímis mun fjölga í hópi þeirra sem þurfa sjúkra­­húsinn­lögn – hvort sem veiran kall­­ast ómíkron eða delta.

Arnar Páls­­son erfða­fræð­ing­ur sagði við Kjarn­ann skömmu fyrir jól að fjölg­un­­ar­­geta ómíkron sé meiri en delta, ann­­arra afbrigða og upp­­runa­­legu gerðar veirunn­­ar. „Það þýðir að með tíð og tíma verður ómíkron alls­ráð­andi í öllum stofn­um, það er að segja á öllum svæðum þar sem veiran geis­­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár