Bandarískir þingmenn vilja að FIFA færi HM burt frá Rússlandi

Þrettán bandarískir öldunga­deildar­þingmenn hafa sent Sepp Blatter, forseta Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins, bréf þar sem þeir óska þess að sambandið færi heims­meistaramót karla í knatt­spyrnu frá Rússlandi. Rússar eiga að halda keppnina árið 2018.

Bréfið var sent á þriðjudag en gert opinbert í gærkvöldi. Þing­mennirnir segja í því að það að leyfa Rússum að halda keppnina muni auka hróður stjórn­valda í ríkinu og það sé óviðeigandi á tímum sem Vladimír Pútín og stjórn hans eigi að hljóta fordæmingu heimsins. Þá hafi yfir 40 ríki beitt Rússa refsiaðgerðum og keppni eins og þessi muni létta á efnahagslegri spennu þar.

Fyrr­verandi forseta­fram­bjóðandi Repúblikana, John McCain, er meðal þeirra sem skrifa undir bréfið. Þing­mennirnir hvetja Alþjóða­knattspyrnu­sambandið einnig til að halda sérstakan fund þar sem kosið verði um málið.

Forseti Úkraínu, Petro Poroshenko, hvatti til þess í síðsta mánuði að ríki heimsins hugleiddu að sniðganga heims­meistara­mótið nema Pútín dragi herlið á sínum vegum frá Úkraínu. Hann sagðist venjulega vilja halda stjórn­málum og fótbolta aðskildum en það væri ekki hægt nú þegar eitt besta knattspyrnu­félag Úkraínu, Shakhtar Donetsk, þarf að spila heima­leiki sína í yfir þúsund kílómetra fjarlægð frá heima­vellinum vegna þess að Donetsk er á valdi aðskilnaðar­sinna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár