Ekkert samráð haft við kennara um sumarkennslu

Verja á 800 milljónum króna í sumar­kennslu í framhalds- og háskólum, samkvæmt ákvörðun stjórn­valda. Ekkert samráð hefur verið haft við kennara á þessum skóla­stigum vegna þessa, að sögn formanna stéttar­félaga þeirra. Þeir segja að það sé kennurum í sjálfs­vald sett hvort þeir taki að sér að kenna í sumar og benda á að mikið álag hafi verið á kennurum undan­farna mánuði.

Háskóli Íslands
Háskóli Íslands Ekkert sam­ráð hefur verið haft við kenn­ara í háskólum og fram­halds­skólum um kennslu í fyr­ir­hug­uðu sum­ar­námi sem kynnt var í síð­ustu viku, en verja á 500 millj­ónum til þess á háskóla­stigi og 300 millj­ónum á fram­halds­skóla­stigi. Mynd: Kristinn Magnússon

Ekkert samráð hefur verið haft við kennara í háskólum og framhalds­skólum um fyrir­hugað sumarnám sem kynnt var í síðustu viku. Formaður Félags háskóla­kennara segist engar upplýsingar hafa aðrar en þær sem komið hafi fram í fréttum og formaður Félags framhalds­skóla­kennara segir að þessi ákvörðun hafi komið flatt upp á sig. 

Lilja Alfreðs­dóttir kynnti í síðustu viku þá ákvörðun stjórn­valda að veita 800 milljónum króna til framhalds- og háskóla svo unnt yrði að bjóða náms­mönnum upp á nám í sumar. Í tilkynningu á vef mennta- og menningar­mála­ráðuneytisins segir að markmiðið sé að sporna gegn atvinnu­leysi hjá ungu fólki og efla menntun. Veita á 500 milljónum í sumarnám á háskóla­stigi og 300 milljónum til sumarnáms í framhalds­skólunum. Námsmenn geti þannig flýtt fyrir námslokum og komið fyrr fullnuma út í atvinnu­lífið, eins og ráðherra kemst að orði í tilkynningunni.

Michael DalHann segir að þegar sum­ar­nám­skeið hafi verið haldin, þá hafi það verið í sam­ráði við kenn­ara.

Þar segir jafnframt að markhópar sumar­námsins á háskóla­stigi séu núverandi nemendur, framtíðar­nemendur, fagaðilar, þátt­takendur í sprota­verkefnum háskóla og atvinnu­lausir. „Þetta hefur ekkert verið rætt við okkur,“ segir Michael Dal,  formaður Félags háskóla­kennara. „Satt best að segja kem ég alveg af fjöllum. Þessar 500 milljónir virðast benda til þess að það eigi að kenna nokkuð mörg námskeið, til þess þarf nokkuð marga kennara.“

Engin umræða hefur farið fram

Michael segir að reyndar sé ekki nýtt að háskóla­kennarar sinni störfum að sumarlagi, alltaf sé eitthvað um kennslu á þessum árstíma og þá sé alltaf eitthvað um að háskóla­kennarar taki að sér verkefni á sumrin sem tengjast loka­verkefnum nemenda. „Þegar sumar­námskeið hafa verið haldin, þá er það alltaf í samráði við kennara og þeir geta neitað því ef þeir vilja. Það þarf líka að hafa í huga að þeir eiga 30 daga lögbundinn orlofs­rétt,“ segir Michael.

„Satt best að segja kem ég alveg af fjöllum“

Heldurðu að háskóla­kennarar séu almennt til í að sinna kennslu í sumar? „Það eru örugglega einhverjir til í það. En sú umræða hefur ekki farið fram vegna þess að þetta hefur ekkert verið kynnt fyrir okkur.“

Ekkert eðlilegt í þessu ástandi

Guðjón Hreinn Hauksson„Við höfum ekki tekið þetta til skoð­unar ennþá vegna þess að við höfum litlar upp­lýs­ingar um hvernig þetta á vera,“ segir Guðjón.

Guðjón Hreinn Hauksson formaður Félags framhalds­skóla­kennara segir að ekkert samráð hafi verið haft við félagið um sumar­kennslu, en hann viti til þess að skóla­meistarar í framhalds­skólum hafi verið hafðir með í ráðum. „Við höfum ekki tekið þetta til skoðunar ennþá vegna þess að við höfum litlar upplýsingar um hvernig þetta á vera,“ segir Guðjón. „Þetta kemur flatt upp á okkur. Auðvitað hefði verið eðlilegt að við kæmum að þessu, en það er reyndar ekkert eðlilegt í þessu ástandi sem við erum í núna vegna COVID-19.“

Ákveðin neyðarráðstöfun

Að sögn Guðjóns eru þegar til heimildir fyrir sumar­kennslu á framhalds­skólastigi og hann segir að einstaka framhalds­skólar hafi boðið upp á sumarnám undan­farin ár og þá ráði kennarar sig í þau verkefni. 

„Ég ætla rétt að vona að við fáum að taka þátt í áfram­haldandi samtali og við munum fylgja því eftir að svo verði“

Hann segir að framhalds­skóla­kennarar hafi tekið á sig mikla viðbótar­vinnu undan­farna mánuði með því að breyta kennslu­tilhögun sinni á skömmum tíma og færa alla kennslu yfir í fjarnám. Þeir hafi verið undir fordæma­lausu álagi og alls óvíst um hversu margir þeirra séu tilbúnir til að kenna í sumar. „Það er eitthvað sem fólk velur sjálft. Fólk þarf að geta fengið sitt lögbundna sumar­leyfi. Ef ekki, þá þurfa að koma til álags­greiðslur og það hefur ekki verið rætt um það, að minnsta kosti ekki við okkur. Það er ráðuneytisins að taka svona ákvörðun og þetta er ákveðin neyðar­ráðstöfun, en ég ætla rétt að vona að við fáum að taka þátt í áfram­haldandi samtali og við munum fylgja því eftir að svo verði,“ segir Guðjón.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hópsýking greindist eftir þorrablót í Brúarási – Guðrún Hafsteins­dóttir meðal gesta

Enn ein matar­sýking er komin upp eftir þorrablót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jökulsár­hlíð á Fljótsdals­héraði á laugar­daginn. Guðrún Hafsteins­dóttir, formanns­efni Sjálfstæðis­flokksins sótti blótið. Samkvæmt Austur­frétt eru Heilbrigðis­eftirlit Austurlans (HAUST) og Heilbrigðis­stofnun Austur­lands (HSA) að vinna að því að rekja uppruna matar­sýkingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laugardags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár