Ætlar að hlekkja sig við Hegningarhúsið

Rósa Jóns­dóttir, móðir kven­fangans í Hegningar­húsinu, er miður sín eftir að hafa heimsótt dóttur sína í dag. Páll Winkel segir að konan þurfi að vera í Hegningar­húsinu þar til kynferðis­brotamenn hafi verið færðir.

Móðir fangans
Móðir fang­ans Rósa Jóns­dóttir ætlar að mót­mæla fyrir utan Hegn­ing­ar­húsið á morgun. Mynd: Samsett

Rósa Jóns­dóttir ætlar að hlekkja sig við Hegningar­húsið á Skólavörðu­stígnum frá og með morgun­deginum til að mótmæla því að dóttir hennar sitji þar inni í kjölfar þess að Kvenna­fangelsinu var lokað á föstudag.

„Þetta er algjört mann­réttinda­brot,“ segir Rósa. „Við vitum ekkert hvað hún á að vera þarna lengi. Hún hélt kannski að það yrði fundur í dag, en hún er alein á gangi og lokuð inni í smáklefa. Þeir fela sig svo á bak við það að það sé opið fram á gang, sem er þrjú skref,“ segir Rósa.

Dóttir hennar var síðasti fanginn sem var fluttur úr Kópa­vogs­fangelsi, eða Kvenna­fangelsinu, þegar því var lokað á föstudag. Í dag er ekkert fangelsi starfrækt fyrir konur.

„Ég byrja örugglega í fyrra­mælið,“ segir Rósa um fyrir­hugaðar mótmæla­aðgerðir. „Þá mæti ég þarna fyrir utan Skólavörðu­stíginn með keðju og lása og ætla að hlekka mig þarna fyrir framan.“

„Hún á sér ekki langa sögu. Hún villtist af braut og fór að nota mjög hörð efni.“

Braut af sér í neyslu

Dóttir Rósu hlaut dóm fyrir ýmsa smáglæpi sem áttu sér stað frá miðbiki síðasta sumars og fram á haust. Hún var dæmd fyrir noktun á stolnu greiðslu­korti, ölvunar­akstur og þjófnað. Dómur féll í lok síðasta árs og hún hóf afplánun í janúar.

Tíminn sem leið frá því að brotin voru framin og afplánun hófst var því óvenju stuttur, miðað við það sem almennt gengur og gerist á Íslandi. „Hún á sér ekki langa sögu. Hún villtist af braut og fór að nota mjög hörð efni á núll einni. Hún var hneppt í síbrota­gæslu­varðhald. Það var eitt og annað sem fylgdi neyslunni, hún framdi ekki líkams­árás heldur var hún í því að redda sér næsta skammti með þessum hætti,“ útskýrir Rósa.

Segir dóttur sína standa sig vel

Rósa segir að dóttir sín hafi staðið sig vel í fangelsinu þar sem hún hafi stundað skóla og vinnu. Hún hafi enn fremur tekið líf án vímuefna alvarlega og ætlað sér að fara í meðferð að aflpánun lokinni.

„Hún hefur ekkert til þess unnið að vera vistuð þarna í afplánun. Hún er búin að standa sig eins og hetja, var orðin kokkur í Kvenna­fangelsinu og verk­stjóri í vinnunni þar. Hún hefur ekki brotið af sér í fangelsi og verðskuldar ekki að klára afplánun þarna inni. Ég er ekki að segja að hún sé einhver engill en hún á þetta ekki skilið,“ segir Rósa.

Hún segir að á Skólavörðu­stígnum sé hvorki vinna né nám í boði. „Hún hefur verið lyfjalaus í fangelsinu en nú á að setja hana á geðlyf svo hún tóri þar inni.“ 

 „Hún er alein þarna og telur mínúturnar.“

Engin heimsókn fram á sunnudag

Samkvæmt Rósu má dóttir hennar aðeins ræða við móður sína og lögmann sinn. Reglur um farsíma­notkun fanga eru mismun­andi en í flestum tilfellum fá fangar aðgang að farsíma, nema þeir hafi brotið reglur fangelsins.

Raunar hittir dóttir hennar enga nema fanga­verði og svo móður sína, hana Rósu. „Hún er alein þarna og telur mínúturnar. Ég var bara að koma frá henni núna og þá er ég búin með heim­sóknar­kvótann. Það er bara ein heimsókn á viku. Ég má koma næst á sunnu­daginn.“

Rýma fyrir kynferðisbrotamenn

Páll Winkel fangelsis­mála­stjóri segist ekki geta tjáð sig um einstaka fanga, en samkvæmt honum stendur ekki til að vista kvenfanga í Hegningar­húsinu til frambúðar. „Við þurftum að fækka um tólf pláss á mjög stuttum tíma. Við þurfum að passa að menn sem hafa verið dæmdir fyrir kynferðis­brot séu ekki vistaðir með konum. Það þýðir í raun að við þurfum að flytja fanga á millri allra fangelsa, sem er töluvert flókin aðgerð. Því hitti þannig á að ein kona þurfti að stoppa í Hegningar­húsinu,“ segir Páll.

„Við þurfum að passa að menn sem hafa verið dæmdir fyrir kynferðis­brot séu ekki vistaðir með konum.“

Einangrun fyrir konur

Engar konur munu hefja afplánun fyrr en í apríl á næsta ári þegar fangelsið á Hólms­heiði verður opnað. Konur sem lenda í gæslu­varðhaldið fram að því standa því frammi fyrir einskonar einangrun. Kven­fangar verða vistaðir í Hegningar­húsinu, þar til því verður lokað á næstu misserum. Þegar Hegningar­húsinu verður lokað verða konur vistaðar í einangrun á Litla Hrauni, þar sem þær eru í klefa sínum í 23 tíma á sólahring og fá svo að fara einar út í garð í klukku­stund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár