Tíu mikilvægustu hlutirnir sem eru að gerast í heiminum

Business Insider birtir reglulega lista yfir tíu mikil­vægustu hlutina sem eru að gerast í heiminum í dag að þeirra mati. Það er ágætt að taka sér smá hlé frá dægur­þrasi hérlendis og skoða heiminn.


  1. Eftir átján mánaða erfiðar viðræður rennur frestur til að semja um kjarnorkumál við Íran út á miðnætti í kvöld. Maraþon­fundir eru því í gangi í Sviss til þess að reyna að klára málið.

  2. Andreas Lubitz, flug­maðurinn sem er talinn hafa grandað farþega­þotu í ölpunum í síðustu viku, sagði „vonandi“ og „kemur í ljós“ þegar flug­stjóri vélarinnar ræddi um væntanlega lendingu vélarinnar í Dusseldorf.

  3. Haldið verður áfram að telja atkvæði í forseta­kosningum í Nígeríu í dag, en fyrstu niður­stöður benda til þess að fyrrum herstjórinn Muhammadu Buhari hafi forskot á núverandi forsetann Goodluck Jonathan.

  4. Forstjóri rafbíla­fyrir­tækisins Tesla, Elon Musk, tilkynnti á Twitter að fyrir­tækið hyggist kynna nýja vörulínu í Kaliforníu þann 30. apríl næst­komandi.

  5. Repúblikanar í Indiana í Banda­ríkjunum hafa heitið því að skýra betur ný og umdeild trúfrelsislög, eftir mikla gagnrýni. Lögin heimila fyrir­tækjum að neita fólki um þjónustu af trúar­legum ástæðum, en gagn­rýnendur hafa bent á að það bjóði upp á mismunun gegn hinsegin fólki.

  6. Einn maður var skotinn til bana og annar særður alvarlega eftir að þeir reyndu að aka niður hlið að Þjóðar­öryggis­stofnun Banda­ríkjanna, NSA, í gær.

  7. Japanir ætla að fram­lengja viðskipta­banni við Norður-Kóreu í tvö ár vegna tafa á rannsókn hinna síðarnefndu á ráni á japönskum ríkis­borgurum fyrir áratugum síðan.

  8. Ein milljón nýrra "grænna" starfa verða til í Kína, Banda­ríkjunum og Evrópu­sambandinu fyrir árið 2030 ef ríkin standa við áheit sín um baráttu gegn hnattrænni hlýnun.

  9. Þingmenn í Kanada ákváðu í gær að styðja loft­árásir á Íslamska ríkið í Sýrlandi.

  10. Hlýnun í Kyrra­hafinu getur bent til þess að El Nino veður­fyrir­brigðið sé að myndast þar, að sögn veður­fræðinga í Ástralíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár