Citigroup greiðir 180 milljónir Bandaríkjadala í sáttagreiðslu

Bandaríski bankinn Citigroup hefur samþykkt að greiðsla 180 milljónir Bandaríkja­dala í sátta­greiðslu, eða sem nemur um 23 milljörðum króna, vegna lögbrota sem framin voru í tveimur vogunar­sjóðum bankans, sem síðan urðu gjald­þrota. Bandaríska fjármála­eftirlitið í New York (SEC) greindi frá þessu í dag, en að sögn Wall Street Journal snéru brot sjóðsins að því að rangar kynningar komu fram um eigna­samsetningu sjóðsins sem og áhættu í rekstri. Þeir fjár­festar sem voru með fjármuni sína í sjóðunum tveimur töpuðu öllu að lokum.

Sjóðirnir tveir, ASTA/MAT fund og Falcon fund, voru með næstum þrjá milljarða Bandaríkja­dali í stýringu, eða sem nemur um 400 milljörðum króna. Áhættu­sækni var mikil í sjóðunum, og byggir sáttin sem bankinn gerði við eftir­litið á því að stjórn­endur hans viðurkenna að kynning á rekstri sjóðanna hafi ekki verið í samræmi við lög, en að öðru leyti lýkur málinu með sátta­greiðslunni.


Citigroup affiliates to pay $180 million for misleading investors: http://t.co/n4nvJByfQK pic.twitter.com/0xmdO50wNa


— The Hill (@thehill) August 17, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár