Sepp Blatter hættir sem forseti FIFA, tilkynnti það fjórum dögum eftir endurkjör

Sepp Blatter er hættur sem forseti Alþjóða­knattspyrnu­sambandsins FIFA, fjórum dögum eftir að hann var endur­kjörinn í umdeildum kosningum og í skugga spillingar­mála. Frá þessu var greint frétt í þessu, eftir að boðað var óvænt til blaðamanna­fundar hjá FIFA.

„Hagsmunir FIFA eru mér kærir. Þess vegna hef ég tekið þessa ákvörðun. Það sem skiptir mig mestu máli er stofnunin FIFA og fótbolti um allan heim,“ sagði Blatter. Hann ætlar að boða til nýs aðal­fundar þar sem þarf að kjósa nýjan formann, en það verður ekki gert fyrr en á tíma­bilinu milli desember á þessu ári og mars á næsta ári.

Spjótin hafa í auknum mæli beinst að Blatter undan­farna daga. Ljóst var að staða hans var orðin erfið eftir að Jerome Valce, framkvæmda­stjóri FIFA og einn nánasti samstarfs­maður Blatter, var í gær nafn­greindur sem sá starfs­maður FIFA sem ásakaður er um að hafa mútað Jack Warner, fyrrum vara­forseta FIFA, með tíu milljónum dala. FIFA hefur neitað því að Valce hafi gert slíkt og segir að fyrrum fjármála­stjóri sambandsins, Julio Grondona, hafi samþykkt greiðsluna sem sannarlega rann úr sjóðum sambandsins til Warner. Grondona er látinn og getur ekki svarað fyrir sakargiftirnar.

Langur skuggi spillingarmála


Blatter, sem er 79 ára, sigr­aði örugg­lega í kosn­ing­unum á föstu­dag. Hann fékk 133 atkvæði en Ali 73. Þar sem hvor­ugur hlaut 2/3 hluta atkvæða þurfti að boða til ann­arra kosn­inga þar sem meiri­hluti atkvæða dyggði til sig­urs. Áður en að henni kom dró Ali fram­boð sitt hins vegar til baka.

Ásýnd FIFA hefur beðið mikinn skaða undan­farna daga. Á miðvikudag í síðustu viku voru margir hátt­settir stjórnar­menn og stjórn­endur innan sambandsins hand­teknir og ákærðir. Sex þeirra voru hand­teknir í Sviss og átta til viðbótar verða ákærðir. Bandarísk yfirvöld fara með rannsókn málsins en grunur er uppi um að einstaklingarnar sem um ræðir hafi þegið mútur upp á hið minnsta 150 milljónir Band­ríkjadala, eða sem nemur um þrettán milljörðum króna, vegna undir­búnings fyrir staðaval HM í fótbolta sem haldið verður í Rússlandi 2018 og Kata 2012. Mennirnir hafa verið ákærðir fyrir múturþægni, peninga­þvætti og ýmislegt fleira.

Á meðal þeirra sem einnig verða ákærðir, en voru hand­teknir í Sviss á miðvikudag, eru Jack Warner, fyrrum vara­forseti FIFA frá Trinidad og Tobago, Jef­frey Webb frá Caym­an Is­lands, vara­for­seti fram­kvæmda­stjórn­ar FIFA, og Eu­genio Figu­eredo frá Úrúg­væ. Búist er við að nokkrir stjórn­endur íþrótta­markaðs­fyrirtækja frá Banda­ríkjunum og Suður-Ameríku verði líka ákærðir en þeir eru grunaðir um að hafa greitt meira en 150 milljónir dala, um 20,2 milljarða króna, í mútur og greiðslur undir borðið og fengið í staðinn arðvæna fjölmiðla­samninga í tengslum við stórar knattspyrnu­keppnir á vegum FIFA. Blatter er ekki á meðal þeirra sem hafa verið hand­teknir og hann segist ekki vera til rann­sóknar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár