„Vakna á hverjum morgni við nýjar hótanir“

Banda­ríkin vilja enn „sigra“ Grænland, að sögn Lars Løkke Rasmussen, utan­ríkis­ráðherra Danmerkur, eftir fund hans og grænlenska utan­ríkis­ráðherrans með Bandaríkja­mönnum.

Utanríkisráðherrar funda
Utan­rík­is­ráð­herrar funda Lars Løkke Rasmus­sen, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur, og Vivian Motzfeldt, utan­rík­is­ráð­herra Græn­lands, lýsa erf­iðri stöðu eftir fund með Banda­ríkja­stjórn. Mynd: AFP

„Það er ekki auðvelt að hugsa í skapandi lausnum þegar maður vaknar á hverjum morgni við nýjar hótanir,“ sagði Lars Løkke Rasmussen, utan­ríkis­ráðherra Danmerkur, eftir fund hans og grænlenska utan­ríkis­ráðherrans, Vivian Motzfeldt, með bandarískum starfs­bróður þeirra og vara­forsetanum JD Vance. 

Svo virðist sem afstaða Banda­ríkjanna um að taka yfir Grænland hafi ekki breyst á fundinum og var niður­staðan að „sjónarmið okkar eru enn ólík,“ eins og Lars Løkke lýsti því.

Danir tilkynntu í dag um að heræfingar hæfust á Grænlandi þegar í stað og kom fram að Norðmenn, Svíar og fleiri tækju þátt. Það virðist ekki hafa breytt stöðunni og eru enn mismun­andi sjónarmið, að sögn Lars Løkke.

„Trump hefur skýra ósk um að sigra Grænland,“ sagði danski utan­ríkis­ráðherrann og tók fram að það væri ekki í hag konungs­dæmisins Danmerkur.

„Það er ekki auðvelt að hugsa í skapandi lausnum þegar maður vaknar á hverjum morgni við nýjar hótanir,“ sagði hann.

„Við höfum sýnt hvar okkar mörk liggja,“ sagði Vivian Motzfeldt. Hún sagðist bera í brjósti „von um sameiginlegan skilning“ og eðlileg samskipti.

Vara­for­set­inn og utan­rík­is­ráð­herr­annJD Vance og Marco Rubio fund­uðu fyrir hönd Banda­ríkja­stjórnar og miðl­uðu því að ekk­ert hefði breyst í afstöðu þeirra um að taka Grænland.

„Þetta er auðvitað mjög tilfinninga­ríkt fyrir okkur öll,“ sagði Lars Løkke. „Við viljum vinna nánar með Banda­ríkjunum, en það verður að byggja á virðingu.“

Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna vöruðu við því í dag að Trump ætlaði sér „nýlendu­drottnun“ yfir Grænlandi.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Júlíus Hjálmarsson skrifaði
    Danir og Grænlendingar eiga að fara í massíva auglýsingaherferð í USA og spyrja hvort þjóðin sé sammála Trump um að yfirtaka Grænland.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár