Miðaverð á „bardaga aldarinnar“ hrynur - mikil eftirvænting

Miðaverð á „bardaga aldarinnar“ milli boxarana Floyd Mayweather og Manny Pacquiao hefur hrunið undan­farna daga, úr ríflega 13 þúsund Bandaríkja­dölum niður í rúmlega sex þúsund. Það þýðir að lausir miðar ganga nú kaupum og sölum á 850 þúsund krónur, en þegar miðasalan opnaði kostuðu miðarnir rúmlega 1,7 milljónir króna.

Ástæðan er einföld, að sögn Forbes. Verðið var einfald­lega of hátt í byrjun og fáir voru tilbúnir að borga uppsett verð í upphafi.

Um miðjan dag í gær voru ennþá 945 sæti laus á bardagann, en hann fer fram í kvöld. Fastlega má gera ráð fyrir að fullt verði á bardagann, en svo virðist sem ansi margir sem verða staddir Las Vegas í kvöld, séu að freista þess að ná miðum fyrir slikk í MGM Grand Garden Arena.

Mikil eftir­vænting ríkir fyrir bardaga þessara tveggja goðsagna í boxheiminum. Búist er við jöfnum bardaga, en veðbankar eru frekar á því á Mayweather muni hafa sigur. Gert er ráð fyrir að tekjur vegna bardagans, beint og óbeint, muni fara yfir 200 milljónir Bandaríkja­dala, að sögn Forbes, eða sem nemur um 27 milljörðum króna.

https://www.youtube.com/watch?v=yx_RIAHR_Ao

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár