Reykur í hvalaskoðunarbát: Skipstjórinn einn eftir um borð

Hvala­skoðunar­báturinn Faldur í hættu skammt undan Húsavík. Farþegum bjargað í annan bát. Eiginkona skip­stjórans segir hann kunna sitt fag.

Skipstjórinn
Skip­stjór­inn Pétur Olgeirs­son er enn um borð.

Skip­stjóri hvala­skoðunar­bátsins Faldurs, Pétur Olgeirsson, er einn eftir um borð í bátnum en fyrr í dag kom upp reykur í vélarúmi skipsins. Það var til þess að allir farþegar voru færðir í björgunar­báta. Eiginkona Pétur, Ása Dagný Hólm­geirsdóttir, var að skima eftir manni sínum við bryggjuna á Húsavík þegar Stundin ræddi við hana. „Ég vildi bara sjá að allt væri í lagi,“ segir Ása. Hún segir að það hafi verið reykur í véla­rúminu sem varð til þess að skipið var rýmt.

Að hennar sögn er öll hætta liðin hjá en hún segir þó að sér hafi verulega brugðið þegar Pétur hringdi í hana og sagði henni að björgunar­sveitarmenn væru um borð. „Þetta bjargaðist vel. Það reyndist vera reykur í vélarúmi. Hann er einn eftir um borð og þetta gengur allt snurðu­laust. Ég er núna niðri á bryggju að kíkja eftir honum. Pétur er mjög reyndur skip­stjórnar­maður og kann sitt fag,“ segir Ása. Að hennar sögn fóru farþegarnir í skoðunar­ferð með öðrum bát eftir þeim að hafði verið bjargað.

Báturinn er á vegum hval­skoðunar­félagsins Gentle Giants en um tuttugu og fjórir ferðamenn voru um borð samkvæmt frétt Vísis. Samkvæmt Ásu er nú verið að draga bátinn í land. „Skip­stjórinn varð var við reyk. Málið er nú leyst,“ segir Stefán Guðmundsson, eigandi Gentle Giants, í samtali við Stundina.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár