Eru Finnar að undirbúa sig fyrir hernaðarátök við Rússa?

Finnsk hermála­yfirvöld hafa sent um 900 þúsund fyrr­verandi hermönnum sem eiga sæti í vara­herliði landsins bréf, þar sem þeir eru upplýstir um hlutverk sitt komi til hernaðar­átaka. Aðgerð finnskra stjórn­valda er talin skýrast af aukinni spennu milli Rússa og nágranna­ríkja þeirra. Frétta­miðillinn CNBC greinir frá málinu.

Þá greinir frétta­miðillinn National Post frá því að fyrstu bréfin hafi verið send hermönnunum fyrr í þessum mánuði, og þau síðstu hafi borist viðtak­endum á síðustu dögum.

Finnland á ekki aðild að Atlantshafs­bandalaginu (NATO) og þjóðin á ríflega 1,300 kílómetra löng landamæri að Rússlandi, þau lengstu í Evrópu fyrir utan Úkraínu.

Mjög sjaldgæf bréf


Í bréf­unum eru vara­lið­arnir upp­lýstir um til hvaða her­fylk­inga þeir eigi að til­kynna sig til komi til átaka. „Með­fylgj­andi eru þínar per­sónu­upp­lýs­ingar og upp­lýs­ingar um hlut­verk þitt komi til hern­að­ar­á­taka,“ segir í bréf­unum, að því er heim­ildir National Post herma.

Þá segir einn finnskur varaliði, í samtali við frétta­miðilinn: „Tíma­setningin er ekki úr lausu lofti gripin. Bréfin eru greini­lega send vegna aukinna hernaðar­umsvifa Rússa. Ég hef verið í vara­herliðinu í fimmtán ár og þetta er í fyrsta sinn að ég fæ svona bréf. Það er mjög sjaldgæft að svona bréf séu send.“

Aukin spenna á svæðinu


Tíma­setn­ing bréfa­send­ing­anna hefur vakið athygli, en Rússar hafa ein­angr­ast mikið á alþjóða­vett­vangi á und­an­förnum miss­erum eftir inn­limun Krím-skag­ans og aðild þeirra að hern­að­ar­á­tökum í Úkraínu. Þá hafa Rússar staðið fyrir umfangs­miklum hern­að­ar­æf­ingum á Eystr­ar­salti, nærri ströndum Finn­lands og ann­arra þjóða Norður-Evrópu.

Herlið Finnlands telur 16 þúsund hermenn í dag, en þjóðin getur stækkað það umtals­vert eða upp í 285 þúsund hermenn kalli hún vara­liðssveitir til þjónustu.

Finnst stjórn­völd hafa neitað því að bréfa­sendingarnar tengist ört vaxandi spennu á milli þeirra og Rússa, eða ástandinu í Úkraínu, og segja að ákveðið hafi verið að senda vara­liðunum bréf fyrir tveimur árum, til að efla samskipti við fyrr­verandi hermenn sína og uppfæra skrár.

Vilja tryggja sér liðsstyrk ef til átaka kemur


National Post hefur eftir starfs­manni inn­an­rík­is­mála­stofn­unar Finn­lands að með bréfa­send­ing­unum vilji finnst stjórn­völd tryggja að þau geti kallað til 230.ooo her­menn með litlum fyr­ir­vara. „Þetta teng­ist auknum óró­leika á svæð­inu. Rússar hafa sýnt að þeir geta flutt fjölda her­manna um langar vega­lengdir á skömmum tíma. Það hafa aldrei fleiri gefið sig á tal við mig og spurt hvort ástæða sé til að hafa áhyggjur.“

Sovét­ríkin réðust inn í Finnland árið 1939 og hernámu um tíu prósent landsins. Á tímum Kalda stríðsins héldu Finnar fast í hlutleysi sitt, en voru engu að síður undir áhrifum stóra nágranna síns í austri.

Á síðustu mánuðum hafa rússneskar herflugvélar flogið ítrekað inn fyrir finnska lofthelgi. Í apríl sleppti finnski sjóherinn djúpsjávar­sprengju eftir að kafbátur, sem óttast var að væri rússneskur, sást á siglinu úti fyrir hafnar­garði Helsinki. Þá hafa Finnar styrkt tengsl sín við NATO að undan­förnu og heitið nágranna­ríkjum sínum hernaðar­legu samstarfi komi til átaka á svæðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár