Sögulegar kosningar í Danmörku - einkennileg staða uppi í dönskum stjórnmálum

Nýafstaðnar þing­kosningar í Danmörku munu rata í sögu­bækurnar sem einhverjar þær sérkennilegustu í sögu landsins. Eða úrslitin öllu heldur. Fyrir því eru margar ástæður.

Eftir að úrslitin lágu fyrir, og ljóst varð að stjórnin hefði misst meirihlutann, tilkynnti Helle Thorning Schmidt forsætis­ráðherra að hún segði af sér formennsku í Jafnaðar­manna­flokknum. Það er þó ekki slök útkoma jafnaðar­manna sem olli því að stjórnin féll heldur hitt að samstarfs­flokkurinn í stjórninni, Radikale, galt afhroð og stuðnings­flokkurinn Sósíalíski þjóðar­flokkurinn sömuleiðis. Rauða blokkin svonefnda, stjórn Helle Thorning og stuðnings­flokkar hennar fengu nú 85 þingsæti, bláa blokkin, stjórnar­andstaðan 90. Þetta er fyrir utan 4 þingmenn Grænlands og Færeyja.

Í kosningunum 2011 töpuðu Jafnaðar­menn fylgi, fengu 44 þingmenn en urðu forystu­flokkurinn í ríkis­stjórn. Núna snérist taflið við þrátt fyrir að flokkurinn hafi bætt við sig þremur þing­mönnum, hefur 47 fulltrúa á þingi og er stærsti flokkurinn.

Ótrúleg fylgisaukning


Ótví­ræður sig­ur­veg­ari kosn­ing­anna í gær var Danski Þjóð­ar­flokk­ur­inn sem bætti við sig hvorki meira né minna en 15 þing­mönnum, hafði 22 en hefur nú 37 og er næst stærsti flokkur lands­ins. Ástæð­urnar fyrir vel­gengn­inni eru, að mati danskra stjórn­mála­skýrenda, þær helstar að flokk­ur­inn hefur haft mjög ákveðna stefnu í mál­efnum inn­flytj­enda og flótta­manna og vill tak­marka "straum­inn til Dan­merkur" eins og það hefur verið orðað. Flokk­ur­inn vill sömu­leiðis standa vörð um aldr­aða og öryrkja og þeirra hag. Síðast en ekki síst nýtur for­mað­ur­inn Kristian Thulesen Dahl mik­illa per­sónu­legra vin­sælda og það er talið vega þungt í útkomu flokks­ins.

Formaður Danska þjóðar­flokksins, Kristian Thulesen Dahl, nýtur mikilla persónulegra vinsælda og það er talið vega þungt í útkomu flokksins. MYND:EPA

Formaður Danska þjóðarflokksins, Kristian Thulesen Dahl, nýtur mikilla persónulegra vinsælda og það er talið vega þungt í útkomu flokksins.
Formaður Danska þjóð­ar­flokks­ins, Kristian Thulesen Dahl, nýtur mik­illa per­sónu­legra vin­sælda og það er talið vega þungt í útkomu flokks­ins.

Alternativet, (Valkosturinn, Hinn mögu­leikinn) náði líka mjög góðum árangri í kosningunum, fékk 9 þingmenn. Uffe Elbæk, sem áður var í Radikale Venstre, og ráðherra í stjórn Helle Thorning, stofnaði flokkinn í hitteðfyrra og var ekki spáð velgengni. Útkoma hans kom því mjög á óvart. Flokkurinn hefur lagt mikla áherslu á umhverfismál og staðsetur sig vinstra megin á miðjunni, með rauðu blokkinni.

Liberal Alliance (Frjálsræðis­bandalagið) sem tilheyrir bláu blokkinni náði líka góðum árangri, bætti við sig fjórum þing­mönnum og hefur nú 13 fulltrúa á þingi. Formaðurinn Anders Samuelsen sagði í gærkvöldi að flokkurinn myndi nýta sér til hins ítrasta þá möguleika sem byðust. Aðaláherslumál flokksins hafa verið efnahags- og skattamál.

Enhedslisten (Einingar­listinn), stuðnings­flokkur fráfar­andi stjórnar, bætti við sig tveimur þing­mönnum og hefur nú 14 þingmenn. Flokkurinn hefur, þrátt fyrir að styðja stjórn Helle Thorning, verið mjög gagn­rýninn á margt í stefnu stjórnarinnar. Leiðtogi flokksins, Johanne Schmidt-Nielsen nýtur mikilla vinsælda og á ugglaust mikinn þátt í hvernig flokknum vegnar.

Venstre galt afhroð


Ekki var sami glans­inn yfir útkomu Venstre flokks Lars Løkke Rasmus­sen. Flokk­ur­inn tap­aði 13 þing­mönnum og hefur nú 34 full­trúa á þing­inu. Var stærsti flokk­ur­inn á síð­asta þingi en er nú þriðji fjöl­menn­asti. Úrslitin eru reið­ar­slag fyrir flokk­inn og einkum og sér í lagi for­mann­inn. Kannanir hafa sýnt að Lars Løkke nýtur tak­mark­aðrar hylli almenn­ings í land­inu en fram til þessa hefur það ekki virst hafa mikil áhrif á fylgi flokks­ins. Annað kom í ljós í kosn­ing­unum.

Sósíalíski þjóðar­flokkurinn, sem hefur lent í miklum mótbyr að undan­förnu reið ekki feitum hesti frá kosningunum, tapaði 9 þing­mönnum af 16 og hefur nú 7 þingmenn.

De Radikale venstre fengu líka skell, hafa nú 8 þingmenn en höfðu 17, töpuðu níu. Velgengni flokksins í kosningunum 2011 voru að talsverðu leyti skrifaðar á þáverandi formann Margrethe Vestager. Hún sagði af sér formennskunni á síðasta ári og tók við stöðu framkvæmda­stjóra hjá Evrópu­sambandinu.

De Konservative (Íhalds­flokkurinn) sem eitt sinn var stærsti flokkur landsins, og var í stjórn með Venstre 2001-2011 fékk nú sex þingmenn, tapaði tveimur. Formaðurinn Søren Pape, sem kemur nýr á þing, taldi það viðunandi miðað við aðstæður.

Helle Thorning Schmidt forsætis­ráðherra tilkynnti að hún segði af sér formennsku í Jafnaðar­manna­flokknum eftir að niður­staða kosninganna lá fyrir. MYND: EPA

Sérkennileg staða


Staðan í dönskum stjórn­málum er nú mjög ein­kenni­leg. Stærsti flokkur lands­ins missti völdin og flokks­for­mað­ur­inn, fyrsti kven­for­sæt­is­ráð­herra í sögu Dan­merkur hefur sagt af sér. Flokk­ur­inn sem stjórn­ar­and­staðan hefur til þessa bent á sem for­ystu­flokk í nýrri stjórn tap­aði miklu fylgi (missti 13 þing­menn) og er lask­aður. Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn, sem er nú stærsti flokk­ur­inn í bláu blokk­inni svo­nefndu, og næst stærsti flokkur lands­ins, lýsti því margoft yfir fyrir kosn­ingar að þar á bæ sækt­ust menn ekki eftir að kom­ast í stjórn. Margir spyrja nú: getur Danski þjóð­ar­flokk­ur­inn skor­ast undan þeirri ábyrgð að setj­ast í rík­is­stjórn ? Treystir Lars Løkke Rasmus­sen sér til for­ystu í stjórn við þessar aðstæður, reynir hann kannski myndun minni­hluta­stjórnar án þátt­töku Danska Þjóð­ar­flokks­ins ? Er hugs­an­legt (sem nefnt hefur verið) að Jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn undir for­ystu nýs for­manns (vænt­an­lega Mette Frederik­sen) myndi stjórn í eins konar sam­vinnu við Danska þjóð­ar­flokk­inn ?

Helle Thorning Schmidt forsætisráðherra tilkynnti að hún segði af sér formennsku í Jafnaðarmannaflokknum eftir að niðurstaða kosninganna lá fyrir. MYND: EPA
Helle Thorning Schmidt for­sæt­is­ráð­herra til­kynnti að hún segði af sér for­mennsku í Jafn­að­ar­manna­flokknum eftir að nið­ur­staða kosn­ing­anna lá fyrir. MYND: EPA

Spurningarnar eru margar, svörin liggja ekki í augum uppi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár