Atvinnuleysi innan ESB ekki mælst minna frá því að mælingar hófust

Atvinnu­leysi hjá ríkjum Evrópu­sambandsins hefur dregist verulega saman á undan­förnum árum, en er samt umtals­vert meira en í Banda­ríkjunum og á Íslandi.

Jean Claude Juncker er forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Jean Claude Juncker er for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Atvinnu­leysi innan Evrópu­sambands­ríkjanna (ESB) mældist 6,2 prósent í ágúst síðastliðnum. Það hefur ekki mælst minna frá því að mælingar hófust árið 2000. Í sama mánuði árið áður hafði atvinnu­leysið mælst 6,7 prósent. Þetta kemur fram í nýlegum tölum frá Eurostat, hagstofu Evrópu­sambandsins.

Alls lækkaði atvinnu­leysi í 24 af ríkjunum 28 sem tilheyra sambandinu. Lægst var atvinnu­leysið í Tékklandi, þar sem það mældist einungis tvö prósent. Atvinnu­leysið hélst eins í Lúxemborg en jókst lítillega í Danmörku (í 5 prósent) og umtals­vert í Litháen (í 6,6 prósent) og Svíþjóð (í 7,1 prósent).

Til saman­burðar var atvinnu­leysi í Banda­ríkjunum í ágúst 3,7 prósent og á Íslandi mældist það 3,4 prósent.

Eurostat metur það sem svo að 15,4 milljónir manna í aðildar­ríkjunum séu án atvinnu. Það eru tæplega 1,2 milljón færri en í sama mánuði í fyrra. Af þessum hópi eru rúmlega 3,1 milljón undir 25 ára aldri, en atvinnu­lausum í þeim hópi fækkaði um 239 þúsund milli ára. Atvinnu­leysi á meðal ungs fólks er áfram sem áður mest í Grikk­landi (33 prósent), Spáni (32,2 prósent) og Ítalíu (27,1 prósent).

Þegar litið er til þeirra landa sem nota evruna sem gjald­miðil mælist atvinnu­leysið aðeins hærra en í sambandinu öllu, eða 7,4 prósent. Það er samt sem áður minnsta atvinnu­leysi sem hefur mælst hjá evru­ríkjunum síðan í maí 2008. Innan þeirra voru 12,1 milljónir manna atvinnu­lausir í ágúst 2019 sem eru 960 þúsund færri en í sama mánuði í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár