„Þetta er mál sem við hefðum kannski þurft að hafa augun meira á“

Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra var spurður á þingi í dag m.a. hverjar hug­myndir hans væru um virka sam­keppni þegar stjórn­völd flyttu þús­undir við­skipta­vina til eins fyr­ir­tækis á sam­keppn­is­mark­aði.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra og Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar ræddu raf­orku­mál í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Jóhann Páll benti á að síðan reglu­gerð­ar­á­kvæði um sölu­að­ila raf­orku til þrauta­vara var sett árið 2019 hefðu tug­þús­undir heim­ila og fyr­ir­tækja verið flutt yfir í við­skipti til eins fyr­ir­tækis á sam­keppn­is­mark­aði sjálf­krafa og án þess að hafa neitt um það að segja.

Málið varðar verð­lagn­ingu N1 Rafmagns, sem áður hét Íslensk orku­miðlun, á raf­magni til þeirra fjöl­mörgu við­skipta­vina sem koma óaf­vit­andi i við­skipti hjá félag­inu á grund­velli þrauta­vara­kerfis. Kjarninn greindi frá því í jan­úar að verð­lagn­ingin hefði verið harð­lega gagn­rýnd af sam­keppn­is­að­ilum félags­ins og jafn­vel kölluð okur en Orku­stofnun rann­sakar nú við­skipta­hætti fyr­ir­tæk­is­ins.

Jóhann Páll benti á í ræðu sinni að neyt­endur hefðu verið látnir greiða allt að 75 pró­sent hærra raf­magns­verð en almennir við­skipta­vinir og rukk­aðir þannig um lang­hæsta raf­magns­verð á Íslandi. Þannig hefði verið okrað á heim­ilum og fyr­ir­tækjum í skjóli reglu­verks sem stjórn­völd bjuggu til.

Vænti hann þess að Guð­laugur Þór hefði fylgst vel með þessu máli. Spurði hann því ráð­herr­ann hvort þetta væri í sam­ræmi við hug­myndir hans um jafn­ræði í atvinnu­líf­inu og virka sam­keppni þegar stjórn­völd flyttu þús­undir við­skipta­vina til eins fyr­ir­tækis á sam­keppn­is­mark­aði og veittu þannig einu fyr­ir­tæki for­gjöf umfram aðra aðila á mark­aði.

Enn fremur hvort Guð­laugur Þór teldi for­svar­an­legt að þetta væri gert án þess að kveðið væri með neinum hætti á um ábyrgð og skyldur fyr­ir­tæk­is­ins gagn­vart neyt­endum.

Reglugerðin örugglega ekki „gerð af illum hug“

Guð­laugur Þór sagði að stutta svarið við þess­ari fyr­ir­spurn væri ein­fald­lega það að sú reglu­gerð sem þarna var sett fram hefði örugg­lega ekki verið gerð af illum hug.

„Hins vegar liggur það alveg fyrir, út af þeim aðstæðum sem hátt­virtur þing­maður vísar til, að við erum að skoða þessi mál. Það sem við viljum auð­vitað er að heim­ilin í land­inu fái bæði örugga og góða orku á eins hag­stæðum kjörum og mögu­legt er. Það er mark­miðið.

Það er hins vegar, eins og hátt­virtur þing­maður veit og hann nefnir hér, eitt mál og það eru fleiri mál sem hafa sann­ar­lega verið áber­andi, og ég ræddi alveg sér­stak­lega í hátt­virti atvinnu­vega­nefnd í morgun, sem eru raf­orku­málin í það heila út af þeirri stöðu sem upp er komin. Við erum núna að gera hluti sem við ættum alls ekki að gera og eru að færa okkur aftur á bak í okkar lofts­lags­mark­miðum, þ.e. að brenna olíu til að skaffa heim­ilum í land­inu raf­orku,“ sagði hann.

Varðandi N1 málið þá sagði ráð­herr­ann að stjórn­völd hefðu ekki ein­ungis augun á því heldur væru þau sömu­leiðis að skoða sér­stak­lega hver reynslan væri af því fyr­ir­komu­lagi sem væri núna og hvernig hægt væri að laga það sem miður færi.

„Ég bara þakka hátt­virtum þing­manni fyrir að vekja athygli á þessum málum vegna þess að það er mjög mik­il­vægt að við vöndum hér til verka. Það verður mikið að gera, virðu­legi for­seti, í raf­orku­málum núna á næstu mán­uðum og miss­erum.“

Spurði hvernig ráðherra ætlaði að bregaðst við

Jóhann Páll fór í pontu í annað sinn og benti á að ráð­herra færi með yfir­stjórn­unar- og eft­ir­lits­heim­ildir gagn­vart allri stjórn­sýslu orku­mála.

„Mér heyr­ist á honum, þótt hann hafi kannski ekki sagt það alveg hreint út af virð­ingu við for­vera sinn í emb­ætti, að hann sé sam­mála mér um að þetta reglu­verk sem var búið til sé með öllu ótækt, sam­ræm­ist ekki sjón­ar­miðum um jafn­ræði í atvinnu­lífi, um virka sam­keppni og um neyt­enda­vernd. Þá hlýtur maður auð­vitað að spyrja hvernig hæst­virtur ráð­herra ætlar að bregð­ast við,“ sagði hann.

Hann spurði enn fremur hvernig ráð­herra sæi fyrir sér að bregð­ast við tveimur úrskurðum sem fallið hefðu þar sem úrskurð­ar­nefnd raf­orku­mála felldi úr gildi ákvörðun Orku­stofn­unar um val á sölu­að­ila raf­orku til þrauta­vara. „Hvernig ætlar ráð­herra að bregð­ast við og hvenær verður það gert?“ spurði hann.

Markmiðið skýrt: Að íslensk heimili og fyrirtæki hafi aðgang að góðri umhverfisvænni orku

Guð­laugur Þór svar­aði og sagði að málið væri stórt. „Þetta er mál sem við hefðum kannski þurft að hafa augun meira á, og þá er ég bara að vísa almennt í þingið. Ég hef svo sem ekki gert neinn sam­an­burð á því en mér sýn­ist eins og við séum búin að ræða meira núna þennan mik­il­væga mála­flokk á síð­ustu tveimur vikum en við höfum gert í mjög langan tíma. Ég ætla ekki að full­yrða hversu langur tími það er. Og sem betur fer bíða mín hér í þing­inu sér­stakrar umræður sér­stak­lega um raf­orku­málin.

Ég ætla ekki hér á mín­útu að úttala mig um flókin mál að öðru leyti en því að mark­miðið er alveg skýrt. Markmið er að sjá til þess að íslensk heim­ili og íslensk fyr­ir­tæki, sér­stak­lega smærri fyr­ir­tæki, hafi aðgang að góðri umhverf­is­vænni orku. Það er það sem við erum að vinna að og hátt­virtur þing­maður vís­aði hér til. Hann vakti athygli á einum þætti en það er af mörgu öðru að taka,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár