Árangursleysi í byssumálum veldur Obama mestum vonbrigðum

Barack Obama Bandaríkja­forseti segir árangurs­leysi í barátt­unni fyrir breyttri byssu­löggjöf í landinu vera það sem valdi honum mestum vonbrigðum í forsetatíð sinni. Eftir rúm sex ár í forseta­stóli eru aðeins um átján mánuðir eftir af forsetatíð hans. Á þessum tíma hefur Obama talað fyrir hertri byssu­löggjöf, sem er hvergi frjáls­lyndari en í Banda­ríkjunum í hinum vestræna heimi, en ekki orðið ágengt.

Obama var í ítarlegu viðtali hjá BBC í gær þar sem hann ræddi meðal annars vonbrigði sín yfir hversu illa hafi gengið að lögbinda „byssu­löggjöf byggða á heilbrigðri skynsemi“. Viðtalið var tekið aðeins örfáum klukku­stundum áður en byssu­maður myrti tvo og særði níu einstaklinga í kvikmynda­húsi í borginni Lafayette í Louisiana fylki í Banda­ríkjunum. Viðtalið hafði ekki verið birt þegar atburðurinn átti sér stað, í gærkvöldi að staðar­tíma. Árásar­maðurinn var hvítur karlmaður, 58 ára að aldri. Hann framdi sjálfs­morð.


Yfir hundrað manns voru í kvik­myndasalnum þegar árásar­maðurinn hóf skothríð. Fólkið var að horfa á myndina Trainwreck. Amy Schumer, aðal­leikkona myndinnar, brást við ódæðis­verkinu á Twitter og sagði hug sinn hjá öllum í Louisiana.

My heart is broken and all my thoughts and prayers are with everyone in Louisiana.

— Amy Schumer (@amyschumer) July 24, 2015


Miklu fleiri byssur og miklu fleiri morð


Í viðtalinu hjá BBC sagði Obama það vera bagalegt að engar veiga­miklar breytingar hafi verið gerðar á byssu­löggjöf í Banda­ríkjunum þrátt fyrir endur­tekin fjölda­morð á undan­förnum árum. „Ef þú skoðar gögn um Bandaríkja­menn sem hafa verið drepnir í hryðjuverka­árásum frá 9. september 2011, þá eru þeir færri en hundrað. Ef þú skoðar gögn um fjölda þeirra sem hafa verið myrtir í byssu­árásum, þá eru það tugir þúsunda,“ sagði forsetinn.


Byssueign Bandaríkja­manna er mun algengari meðal almennings en þekkist í öðrum vestrænum ríkjum. Samkvæmt frétt bandaríska fjöl­miðilsins Vox eiga Bandaríkja­menn ríflega 40 prósent af öllum byssum í almennings­eigu í Banda­ríkjunum, en skotvopn í eigu almennings í heiminum eru um 644 milljón talsins, samkvæmt gögnum Sameinuðu þjóðanna. Bandaríkja­menn, samtals um 330 milljón talsins, telja 4,4 prósent af mann­kyninu.


Taflan hér að neðan sýnir manndráp með byssum á hverja milljón íbúa í fjórtán vestrænum ríkjum. Í Banda­ríkjunum voru 29,7 skotnir til bana á hverja milljón íbúa árið 2012, langtum fleiri en í samanburðar­löndum.

Manndráp í Banda­ríkjunum og öðrum vestrænum ríkjum á hverja milljón íbúa. Kortið er fengið af Vox.com

Hræðilegur fjöldi árása á óbreytta borgara


Árás byssu­mannsins á óbreytta borgara í gær er ekki sú fyrsta og, því miður, ólíklega sú síðasta í Banda­ríkjunum. Frétta­síðan Vox fjallar um fjölda slíkra árása á síðustu árum og segir að gögn bendi til að þær hafi færst í aukana. Þrjú ár eru liðin frá því að byssu­maður myrti tólf og særði 70 í kvikmynda­húsi í Aurora í Colorado fylki. Þá eru aðeins örfáar vikur síðan ungur hvítur maður skaut níu svarta kirkju­gesti í Charleston til bana. Hann hefur verið ákærður fyrir haturs­glæp.


Í annarri frétt Vox í dag segir að 226 manns hið minnsta hafi látið lífið í 72 byssu­árásum fjölda­morðingja í Banda­ríkjunum frá því í desember 2012. Í þeim mánuði myrti byssu­maður tuttugu börn, sex fullorðna og sjálfan sig í grunn­skólanum Sandy Hook í bænum Newton í Connecticut fylki.


Meðfylgjandi kort er birt í umfjölluninni. Það sýnir öll fjölda­morð (e. mass shootings) í Banda­ríkjunum síðan í desember 2012. Kortið er unnið af Standford háskóla.


Manndráp í Bandaríkjunum og öðrum vestrænum ríkjum á hverja milljón íbúa. Kortið er fengið af Vox.com
Manndráp í Banda­ríkj­unum og öðrum vest­rænum ríkjum á hverja milljón íbúa. Kortið er fengið af Vox.com
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár