Charleston morðinginn sömuleiðis ákærður fyrir tilraunir til manndráps

Dylann Storm Roof, sem ákærður er fyrir að hafa skotið níu svarta kirkju­gesti í Charleston til bana með köldu blóði þann 17. júní síðastliðinn, hefur verið ákærður fyrir þrjár manndrápstilraunir að auki. Þetta tilkynnti saksóknari málsins í dag, en frétta­miðillinn TIME greinir frá málinu.

Skot­árásin átti sér stað við biblíu­kennslu þegar Roof, sem er 21. árs, stóð skyndi­lega upp og hóf að skjóta á viðstadda. Níu lágu í valnum eftir árásina, en hún er rakin til djúpstæðs kynþátta­haturs. Nokkrar kirkjur svartra hafa verið brenndar til grunna í Suður-Karólínu eftir að voða­verkið átti sér stað.

Dylan Storm Roof hefur verið ákærður fyrir að myrða níu kirkju­gesti, og vopna­lagabrot, en ákærurnar er varða tilraun til manndráps stafa af kirkugestum sem lifðu af árásina. Hann á að mæta aftur fyrir dómara í október.

Alríkis­yfirvöld í Banda­ríkjunum hafa ekki upplýst um hvort Roof verði sóttur til saka fyrir haturs­glæp, en embættis­menn bandaríska dómsmála­ráðuneytisins hafa látið hafa eftir sér að voða­verkin uppfylli skilyrði fyrir slíkri saksókn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár