Kúba ekki lengur á lista Bandaríkjanna yfir ríki sem styðja hryðjuverk

Stjórn­völd í Banda­ríkjunum hafa fjarlægt Kúbu af lista sínum yfir ríki sem styðja hryðju­verk. Þetta var gert í dag.

Þetta er talið stórt skref í samskiptum ríkjanna tveggja, en Kúba hefur verið á listanum frá árinu 1982. Vera Kúbu á listanum hefur komið í veg fyrir ýmislegt í tengslum ríkjanna, til að mynda opnun sendiráða. Nú hafa stórar hindranir verið fjar­lægðar.

Ákvörðun Bandaríkja­manna er hluti af stefnu Obama Bandaríkja­forseta um að bæta samskipti ríkjanna tveggja, og hann tilkynnti að hann hygðist gera þetta fyrir 45 dögum síðan, en þingið hafði 45 daga til þess að mótmæla þessari ákvörðun en sá frestur rann út í dag.

Obama og Raúl Castro, forseti Kúbu, hittust á fundi í Panama í byrjun apríl, en það var fyrsti leiðtogi leiðtoga ríkjanna tveggja í fimmtíu ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár