„Við erum ekki að fara að bjarga heiminum“

Nýskipaður umhverfis-, orku- og loftslags­ráðherra segir mikilvægt að ríkar umhverfis­kröfur verði gerðar til stór­notenda á íslenskri orku sem og öðrum atvinnu­greinum hérlendis í ítarlegu viðtali í jólablaði Vísbendingar.

Guðlaugur Þór Þórðarson, nýskipaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, nýskip­aður umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis,- orku- og loftslags­ráðherra, segir Íslendinga verða að vera kröfu­harða þegar kemur að erlendum fyrir­tækjum sem vilja nota íslenska orku og starfa hérlendis. Hann segir sjónarmið þeirra sem gagnrýna rafmynta­framleiðslu hérlendis eiga rétt á sér, en segir það þó vera ljóst að Ísland sé ekki að fara að bjarga heiminum. Þetta kemur fram í viðtali við Guðlaug Þór í jólablaði Vísbendingar, sérstakri viðhafnar­útgáfu sem kom út fyrr í dag og er opið öllum að þessu sinni, en Vísbending er áskriftarrit um efnahagsmál sem kemur út vikulega.

„Þurfum að hafa allt í lagi heima hjá okkur“

Í viðtalinu segir ráðherrann að tækifæri til verðmæta­sköpunar með hreinni orku hérlendis séu næg og að Íslendingar séu komnir á þann öfundsverða stað að þeir geti valið á milli mismun­andi fjár­festinga­kosta. „Við höfum alla tíð verið að reyna að fá erlenda fjár­festingu hingað inn. Eins og staðan er núna – þótt ekki sé vitað hversu lengi það verður – þá eru margir að líta hingað, erlendir aðilar, og segja: Heyrðu getum við unnið saman?“

Samkvæmt Guðlaugi er lögð sérstök áhersla á sjálfbærni og umhverfismál þegar Ísland er kynnt fyrir erlendum fjár­festum. „Og þá þurfum við að hafa allt í lagi heima hjá okkur. Þá skiptir engu máli hvort það heitir fiskeldi eða verksmiðju­framleiðsla eða ferða­þjónusta, þetta verður bara að vera í lagi.“

Aðspurður um sjónarmið þeirra sem gagnrýna vægi rafmynta­framleiðslu hjá gagna­verum hérlendis og hvort Íslendingar hafi verið nógu kröfu­harðir á það hvaða fyrirtæki nota íslenska orku segir Guðlaugur að honum finnist þessi sjónarmið eiga rétt á sér. „Við verðum að vera kröfuhörð, það er bara eitt af því sem við þurfum að gera.“

„En við getum ekki haft allt. Það er alveg sama hvað við gerum, við erum ekki að fara að bjarga heiminum, það liggur alveg fyrir. Og ég veit ekki til þess að neinn sé með þær hugmyndir. Við verðum að mínu áliti að vanda okkur hvað við veljum og hvaða viðskiptum við ætlum að eiga í.“

Áhersla á sjálfbærni og umhverfismál

Í jólablaði Vísbendingar er sérstök áhersla lögð á umhverfismál, sjálfbærni og grænar lausnir. Þar má meðal annars finna grein eftir Guðrúnu Johnsen hagfræðing um fjár­festingar­ákvarðanir lífeyris­sjóða og Berglindi Rán Ólafs­dóttur framkvæmda­stýru Orku nátt­úrunnar um það hvort Íslendingar ættu að virkja meira í þágu loftslags­mála.

Einnig skrifa þar Kristján Guy Burgess ráðgjafi um grænt plan fyrir Ísland og Auður Önnu Magnúsdóttir framkvæmda­stjóri Land­verndar um bætta orku­nýtingu. Gunnar Jakobsson, aðstoðar­seðla­bankastjóri fjármála­stöðugleika, skrifar einnig um hlutverk seðla­banka í loftslags­málum, auk þess sem Hafdís Hanna Ægis­dóttir, forstöðu­maður Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun hjá Háskóla Íslands, skrifar um fjár­festingu í líffræðilegri fjöl­breytni.

Bjarni Herrera, forstöðu­maður sjálfbærni hjá KPMG, fjallar líka um sjálf­bærar fjár­festingar í grein sinni í blaðinu, en þar leggur hann áherslu á nýjar tegundir fjármála­afurða. Krist­björg M. Kristins­dóttir, stjórnar­formaður IcelandSIF, fer svo yfir leiðir til að auka framboð slíkra fjár­festinga­kosta hérlendis.

Þá skrifar Aðal­heiður Snæbjarnar­dóttir, sérfræðingur í sjálfbærni hjá Lands­bankanum einnig í blaðið, en hún fer yfir mikilvægi þess að bankar gefi upp gagnsæjar sjálfbærni­upplýsingar af starfsemi sinni. Sömuleiðis fer Hrefna Ösp Sigfinns­dóttir, framkvæmda­stjóri Creditinfo, yfir þau skilyrði sem íslensk fyrirtæki þurfa að ná til að teljast fram­úrskarandi, en þau snúa mörg hver umhverfis­málum eða sjálfbærni.

Hagfræðingurinn Eiríkur Ragnarson, sem er fastur penni hjá Vísbendingu, fer svo yfir það hvernig efnahagsleg áhrif loftslags­breytinga verða líklega ójöfn á milli landa, en því er spáð að þau verði mun meiri í fátækari ríkjum heimsins.

Hægt er að lesa jóla­blaðið í heild sinni með því að smella hér.

Áskrifendur hafa þegar fengið jólablað Vísbendingar sent í tölvu­pósti, en ritið kemur að þessu sinni aðeins út á rafrænu formi en er ekki prentað. Þetta er gert með sjálfbærni að leiðar­ljósi og í því skyni að minnka kolefnis­fótspor.

Hægt er að gerast áskrifandi að Vísbendingu, sem kemur út vikulega, með því að smella hér. Næsti útgáfu­dagur ritsins er föstu­dagurinn 7. janúar 2022.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár