Þýsk fyrirtæki og almenningur vilja að Grikkir yfirgefi evruna

Flestir stjórn­endur þýskra fyrir­tækja vilja að Grikkir yfirgefi evruna. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem þýska viðskipta­blaðið Handelsblatt framkvæmdi. Í henni kom í ljos að 44 prósent þeirra 673 stjórn­enda þýskra fyrir­tækja sem spurðir voru um málið vildu að Grikkir hefðu frumkvæði að því að hætta með evru sem gjald­miðil. Auk þess töldu þrettán prósent þeirra að reka ætti Grikki úr mynt­sambandinu. Frá þessu er greint á vef Business Insider.

Átta af hverjum tíu þýskum stjórn­endum telja að ef Grikkir myndu yfirgefa evruna þá myndi það ekki hafa neikvæð áhrif á önnur ríki sem eru hluti af mynt­samstarfinu og minna en fimmtungur aðspurðra hafði áhyggjur af efnahagslegri keðjuverkun þess.

Yanis Varoufakis fjármála­ráðherra Grikk­lands og Alexis Tsipras forsætis­ráðherra landsins.

Yanis Varoufakis fjármálaráðherra Grikklands og Alexis Tsipras forsætisráðherra landsins.
Yanis Varoufakis fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands og Alexis Tsipras for­sæt­is­ráð­herra lands­ins.

Þetta er töluverður viðsnúningur á viðhorfi gagnvart því að Grikkir yfirgefi evruna. Á meðan að á evru­krísunni stóð, á árunum 2010 til 2012, þá höfðu fyrirtæki og stjórn­málamenn í Evrópu miklar áhyggjur af þeim dóminó-áhrifum sem það gæti valdið ef Grikkir hættu að notast við evru. Áhyggjurnar stöfuðu ekki síst af fordæminu sem því myndi fylgja, að ríki gæti yfirgefið mynt­samstarfið. Það myndi skapa mikið óöryggi innan þess að ef harðna færi á dalnum gætu ríki alltaf hótað að hætta. Hægt væri að ráða við brott­hvarf Grikk­lands en brott­hvarf til dæmis Portúgal gæti leitt til brott­hvarfs Spánar og svo framvegis. Nú virðast þessar áhyggjur að mestu horfnar.

Það eru ekki bara fyrir­tækin í Þýska­landi sem hafa þá skoðun að Grikkir ættu að yfirgefa mynt­samstarfið. Í könnun sem framkvæmd var í mars kom í ljós að rúmur helmingur almennings er á þeirri skoðun líka.

Í Grikk­landi er staðan hins vegar allt önnur. Þar vill meirihluti lands­manna vera áfram hluti af evru­svæðinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár