Fjórföld hækkun forstjóralauna ríkisfyrirtækja miðað við launaþróun

Launa­hækkun forstjóra Lands­bankans, Isavia og Lands­virkjunar á síðustu árum var fjórum sinnum meiri en breytingar á almennri launa­vísitölu.

Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans.
Lilja Björk Ein­ars­dóttir er banka­stjóri Lands­bank­ans. Mynd: Landsbankinn

Laun forstjóra Isavia, Lands­virkjunar og Lands­bankans hafa hækkað langt umfram almenna launa­hækkun á síðustu fjórum árum. Þetta kemur fram í svari fjármála­ráðherra við fyrir­spurn Þorsteins Víglundssonar á Alþingi.

Í svarinu voru meðallaun forstjóra Isavia, Íslands­banka, Íslands­pósts, Kadeco, Lands­bankans, Lands­virkjunar, Orkubús Vestfjarða og Rariks á tíma­bilinu 2014-2017 birt. Þar að auki var greint frá launa­breytingum forstjóranna í júlí 2017 þegar þær tilheyrðu ekki lengur undir Kjararáði.

Laun þeirra allra hækkuðu nokkuð á þessu tímabili að undan­skildu Kadeco, en mánaðar­laun forstjóra þess fyrir­tækis lækkuðu úr 1.222.656 krónum árið 2014 niður í sléttar 1,2 milljónir í júlí 2017. Að meðaltali hækkuðu laun forstjóranna þó um 29 prósent frá 2014 til júlí 2017.

Fjórföld hækkun

Forstjóra­laun þriggja fyrir­tækja, Isavia, Lands­virkjunar og Lands­bankans hækkuðu hins vegar einna mest á tíma­bilinu og langt umfram almenna launa­þróun. Hjá Isavia hækkuðu þau um 65 prósent, eða úr 1,44 milljónum í 2,38 milljónum. Hjá Lands­virkjun hækkuðu forstjóra­laun svo um 95 prósent, eða úr 1,69 milljónum í 3,29 milljónum. Mest var hækkunin þó hjá Lands­bankanum, en þar hækkuðu mánaðar­laun forstjórans um 105%, úr 1,58 milljónum í 3,25 milljónum.

Til saman­burðar hækkaði launa­vísitala Hagstofu um 22,5% á umræddu tímabili, frá 2014 til júlí 2017. Launa­hækkun forstjóranna þriggja er því að meðaltali fjórfalt meiri en almenn launa­þróun hefur verið til síðustu fjögurra ára.

Kjarninn fjallaði fyrr í dag um 1,2 milljóna króna hækkun á mánaðar­laun Harðar Arnar­sonar, forstjóra Lands­virkjunar í kjölfar þess að launa­ákvörðunin hafi færst frá Kjararáði. Samkvæmt Frétta­blaðinu sagðist Lands­virkjun aðeins hafa verið að efna ráðninga­samning við forstjórann, en laun hans hafi lækkað verulega þegar þau voru færð undir kjararáð í febrúar 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár