Sex sóttu um að verða næsti forstjóri Barnaverndarstofu

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, mun á næst­unni skip­a nýjan for­­stjóra ­Barna­vernd­ar­stofu til fimm ára í senn að und­an­gengnu mati sér­stakrar hæfn­is­nefndar.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, mun skipa nýjan forstjóra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, mun skipa nýjan for­stjóra. Mynd: Hringbraut

Sex sóttu um að verða næsti for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu en umsókn­ar­frestur rann út í síð­ustu viku. Á meðal þeirra sem sóttu um er Heiða Björg Pálma­dótt­ir, sem hefur gegnt starfi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu tíma­bundið eftir að Bragi Guð­brands­son fór í leyfi. Aðrir umsækj­endur eru Birna Guð­munds­dóttir, Guðlaug María Júl­í­us­dóttir, Katrín Jóns­dóttir, Róbert Ragn­ars­son og Svala Ísfeld Ólafs­dóttir. Frá þessu er greint á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, skip­ar for­­stjóra ­Barna­vernd­ar­stofu til fimm ára í senn að und­an­gengnu mati sér­stakrar hæfn­is­nefndar sem ráð­herra setur á grund­velli laga um rétt­indi og skyldur starfs­manna rík­is­ins.

Bragi Guð­brands­son, sem hafði gegnt starf­inu árum saman, lét af starfi for­stjóra í febr­úar í fyrra eftir að hafa tekið sæti í Barna­rétt­­ar­­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna fyr­ir Íslands hönd og tekið að sér sér­verk­efni á vegum vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins. 

Fé­lags- og barna­mála­ráðu­neyt­ið vinnur að heild­ar­end­ur­skoðun á barna­vernd­ar­lög­gjöf og fram­kvæmd þjón­ust­unnar við börn og sam­kvæmt til­kynn­ing­unni geta breyt­ingar orðið í kjöl­farið sem hafa áhrif á starf­sem­i ­Barna­vernd­ar­stofu.

Í lok febr­úar á síð­asta ári til­kynnti ráðu­neytið að eft­ir­lit með öllu barna­vernd­­ar­­starfi í land­inu yrði end­­ur­­skoðað og ráð­ist yrði í heild­­ar­end­­ur­­skoðun barna­vernd­­ar­laga. Þá verði settar skýrar for­m­­kröfur um sam­­skipta­hætti stjórn­­­valda sem gegna hlut­verki á sviði barna­vernd­­ar.

Í til­kynn­ing­unni um frum­varpið kom fram að fyr­ir­hug­aðar breyt­ingar á sviði barna­verndar séu að hluta til liður í við­brögðum ráðu­­neyt­is­ins til að end­­ur­heimta traust í kjöl­far kvart­ana frá for­­menn ­barna­vernd­ar­nefnd­anna ­vegna sam­­skipta við Barna­vernd­­ar­­stofu og for­­stjóra hennar en þeim sé einnig ætlað að bæta stjórn­sýslu mála­flokks­ins og stuðla að þróun nýrra úrræða í barna­vernd.

Hlut­verk Barna­vernd­ar­stofu er að vinna að sam­hæf­ingu og efl­ingu barna­vernd­ar­starfs í land­inu og er félags­mála­ráð­herra til ráð­gjafar um stefnu­mótun í mála­flokkn­um, sam­kvæmt vef félags­mála­ráðu­neyt­is­ins. Jafn­framt fer Barna­vernd­ar­stofa með leið­bein­ingar um túlkun og fram­kvæmd barna­vernd­ar­laga og fræðslu og ráð­gjöf fyrir barna­vernd­ar­nefndir í land­inu. Enn fremur hefur Barna­vernd­ar­stofa eft­ir­lit með störfum barna­vernd­ar­nefnda.

Barna­vernd­ar­stofa ann­ast meðal ann­ars leyf­is­veit­ingar til fóst­ur­for­eldra, tekur ákvarð­anir og veitir barna­vernd­ar­nefndum lið­sinni í fóst­ur­mál­um, fer með yfir­stjórn heim­ila og stofn­ana sem rík­inu ber að sjá til að séu til­tæk og hlut­ast til um að slík heim­ili og stofn­anir verði sett á fót. Stofan hefur yfir­um­sjón með vistun barna á þessum heim­ilum og stofn­un­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár