Grískir fjölmiðlar segja ESB tilbúið með tillögur að lausn fyrir Grikkland

Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmda­stjórnar Evrópu­sambandsins, hefur sent tillögur að samkomu­lagi ESB, Alþjóða­gjaldeyris­sjóðsins og Grikk­lands um áfram­haldandi neyðarlán til Grikkja. Þetta segir gríski fjöl­miðillinn To Vima og segist hafa samkomu­lagið undir höndum. Framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins segist ekki geta staðfest að búið sé að senda tillögur neitt, en neitaði því þó ekki, sem hefur vakið athygli.


Can't confirm media reports on @EU_Commission /Juncker proposal on GR. Not aware of such proposal. Working towards comprehensive deal.


— Annika Breidthardt (@A_Breidthardt) May 18, 2015


We can't confirm media allegations about @EU_Commission proposal on #Greece. Hard work continue towards deal, with #IMF @ecb & #eurogroup


— Olivier Bailly (@OlivierBaillyEU) May 18, 2015

Fjöl­margar til­lögur að umbótum eru í skjal­inu sem To Vima hefur undir höndum. Þær eru skil­yrði fyrir því að losað verði um fimm millj­arða evra lán til Grikkja, sem þeir þurfa nauð­syn­lega á að halda til þess að geta staðið í skilum. Grísk stjórn­völd hafa varað við því und­an­farna mán­uði að þau séu nálægt því að verða uppi­skroppa með fé til að end­ur­greiða lán og borga út laun og líf­eyri.

Samkvæmt samkomu­laginu er fyrsta skilyrðið að festa í lög allar þær umbætur sem krafist er, og það strax í maí. Annað skilyrðið er að Grikkir geri umtals­verðar breytingar á efnahags­kerfi sínu fyrir haustið. Þær umbætur eru meðal annars breytingar á lífeyris­kerfinu og vinnu­markaðnum. Í skjalinu sem To Vima hefur undir höndum eru þó færri umbætur og breytingar en hingað til hefur verið talað um. Þá kemur fram í fréttum að Alþjóða­gjaldeyris­sjóðurinn hafi efasemdir um þessa tillögu, sem þykir rausnarlegri við Grikki en það sem hingað til hefur verið til umræðu. Séu þetta réttar tillögur frá ESB þykja þær sigur fyrir Syriza, stjórnar­flokkinn í Grikk­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár