Vilja koma í veg fyrir útilokun heillar kynslóðar Sýrlendinga

Sigmundur Davíð fundaði með yfirmönnum Flóttamannahjálpar SÞ í gær.
Sig­mundur Davíð fund­aði með yfir­mönnum Flótta­manna­hjálpar SÞ í gær. Mynd: Forsætisráðuneytið

Leiðtogar víða að úr heiminum koma saman í London á morgun til þess að ræða flóttamanna­vandann vegna stríðsins í Sýrlandi. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætis­ráðherra verður á ráðstefnunni, en hann fer til London frá Líbanon, þar sem hann hefur undan­farna daga kynnt sér aðstæður flótta­manna.

Markmiðið með ráðstefnunni á morgun er að safna níu milljörðum Bandaríkja­dala fyrir sýrlenska flótta­menn og koma í veg fyrir að stétt ómenntaðra, atvinnu­lausra og rótlausra Sýrlendinga festist í sessi í ríkjunum sem eiga landamæri að Sýrlandi. 4,6 milljónir Sýrlendinga hafa flúið til nágranna­ríkjanna. Skipuleggjendur ráðstefnunnar vilja að megin­þungi hjálpar­aðstoðar í þessum löndum færist frá matar­gjöfum og til þess að skapa vinnu- og menntunar­tækifæri fyrir Sýrlendinga í Líbanon, Tyrklandi og Jórdaníu.

Leiðtogar Bretlands, Þýska­lands, Noregs og Kúvæt standa fyrir fundinum á morgun. Guardian greinir frá því í dag að bresk stjórn­völd hafi áttað sig á því að aukin hætta sé á því að flótta­menn gangi til liðs við öfgahópa eða gefist upp á biðinni og hefji langa ferð til Evrópu ef þeim er ekki boðið upp á betra líf bæði innan og utan flóttamanna­búða. Þá hafi skilningur einnig aukist á því að ríkin í nágrenni Sýrlands geti ekki borið allar byrðarnar ein án miklu meiri hjálpar.

Forsvars­menn ráðstefnunnar vilja að markmið þessa árs verði að koma einni milljón Sýrlendinga í skóla og tugþúsundum í vinnu með því að veita atvinnu­leyfi. Ríkin í kringum Sýrland hafa upplifað miklar breytingar á vinnu­markaði með innkomu flótta­manna og hafa verið treg til að veita atvinnu­leyfi.

UNICEF, barna­hjálp Sameinuðu þjóðanna, hefur sagt að 1,4 milljarð Bandaríkja­dala þurfi til þess að hjálpa börnum í Sýrlandi og sýrlenskum börnum annars staðar.

Flótta­mannaráð Noregs hefur gefið út ýmsar tölur í tilefni af ráðstefnunni á morgun. Meðal annars kemur þar fram að 700 þúsund Sýrlendingar séu ólöglegir í Líbanon, sem geri þeim erfitt fyrir að komast í skóla eða fá atvinnu­leyfi. 250 þúsund manns eru talin óskráð í Jórdaníu, og 70% sýrlenskra flótta­manna í þessum tveimur ríkjum búa við mikla fátækt. 200 þúsund skólabörn í Líbanon ganga ekki í skóla, og í Jórdaníu eru fjögur af hverjum tíu flótta­börnum ekki í skóla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár